hvalveiðar Íslendinga.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður segir hér að ég hefi enga skoðun á lífríki sjávar. — Enga skoðun á lífríki sjávar? Ég var nú að fara nákvæmlega yfir það hér í mínu svari, sem er algerlega skýrt. Og að hv. þingmaður skuli leggja þannig út af orðum mínum er náttúrlega sérstakt rannsóknarefni. (Gripið fram í: Hvaða, hvaða.) — Sérstakt rannsóknarefni. (Gripið fram í: Í alvöru?) Og hv. þingmaður, (Gripið fram í: Það var bara ekkert …) sem er hér í ræðustól að ræða lífríki, gagnrýnir á sama tíma það þegar ég er að benda á hið augljósa, að það er verið að skerða lífríki okkar Reykvíkinga, okkar landsmanna, á ábyrgð Viðreisnar. [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í: Svaraðu bara spurningunni.) Hvaða spurningu? Það er algerlega skýrt í mínum huga og liggur alveg fyrir að ég legg áherslu á það að við nýtum auðlindir bæði sjós og lands með sjálfbærum hætti. (Gripið fram í: Bannaðu það.) Ég held að það þurfi aðeins að skoða fullyrðingar hv. þingmanns þegar hann fer yfir sjálfbærniviðmiðin varðandi þessar veiðar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, en við klárum það ekki í þessari umræðu. (Gripið fram í: Það er rétt.)