153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

stjórnarhættir og skipulag lögreglu.

[14:02]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í nýútkominni meistararitgerð í stjórnun og stefnumótun kemst höfundur að þeirri niðurstöðu [Kliður í þingsal.] að slælegir stjórnarhættir og spilling séu stórir áhrifaþættir í miklu brottfalli hjá lögreglumönnum undanfarin 15 ár. Breytinga sé þörf í stjórnarháttum og skipulagi lögreglunnar. Ritgerðin, sem ber titilinn Það hefur enginn verið rekinn fyrir að gera ekki neitt, fjallar um brotthvarf menntaðra lögreglumanna úr starfi á undanförnum árum en sjálf segist höfundur hafa horft á eftir of mörgum góðum samstarfsfélögum hverfa úr starfi og hafi hún þess vegna ráðist í þessa rannsókn. Viðbrögð lögreglunnar við þessari niðurstöðu? Jú, ekki nóg með að ríkislögreglustjóri hafi ekki áhyggjur af spillingu og frændhygli innan lögreglunnar heldur fullyrðir hún eftir útkomu þessarar rannsóknar að engar vísbendingar hafi komið fram um kerfisbundna spillingu innan lögreglunnar.

Spurning mín til hæstv. dómsmálaráðherra er: Hvernig ætlar ráðherra að bregðast við þessum vísbendingum um kerfislæga spillingu innan lögreglunnar?