153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

stjórnarhættir og skipulag lögreglu.

[14:04]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er hátt reitt til höggs í þeim ásökunum sem koma fram í þessari meistararitgerð gagnvart starfsháttum lögreglunnar og ég mun að sjálfsögðu fara yfir þetta mál í ráðuneytinu. Ég mun m.a. hitta skýrsluhöfund og kynna mér röksemdir sem þarna liggja að baki og eiga þá samtal við stjórnendur í lögreglunni og skoða þetta mál nánar.