Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[14:10]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mig langar við þetta tilefni að þakka hv. atvinnuveganefnd fyrir vinnuna að því að ljúka við þessa þingsályktunartillögu til afgreiðslu fyrir Alþingi. Hér erum við í raun og veru að afgreiða í fyrsta skipti stefnumörkun til lengri tíma í þessari atvinnugrein sem er innlendur landbúnaður. Það er mjög mikilvægt upp á það að við höfum grundvöll bæði fyrir lagasetningu en líka fyrir samspili landbúnaðar við aðra stefnumótun stjórnvalda. Ég nefni sjálfbærni í nýtingu náttúruauðlinda, landnýtingu sem tekur mið af ástandi vistkerfa á hverjum tíma, verndun og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni og síðast en ekki síst framleiðslu heilnæmra afurða, matvælaöryggi og svo fæðuöryggi, þannig að hér, ásamt áherslum í loftslagsmálum, erum við að leggja grunn, að mörgu leyti byggt á þeirri stefnumótun sem sómi er að að Alþingi fái tækifæri til að greiða atkvæði um hér.