Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[14:13]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum að greiða hér atkvæði um stefnuplagg ríkisstjórnarflokkanna inn í framtíðina um landbúnaðarmál. Það er ýmislegt fínt í þessari stefnu, annað ekki svo mjög, eins og gengur og gerist. Umræðan hér í þingsal í gær var reyndar mjög góð, margt sem kom þar fram og ástæða eiginlega til að bíða allt að því spennt eftir aðgerðaáætlun. En í ljósi þess að þetta er þetta stjórnarplagg, þessi stefna sem stjórnarflokkarnir þrír hafa markað sér, með sínum ágætu kostum en fjölmörgu göllum, þá mun þingflokkur Viðreisnar sitja hjá að svo stöddu.