landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Frú forseti. Ég verð að taka undir með hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni sem bendir á það að hér eru ýmsar fallegar setningar en ekkert um það hvernig eigi að ná markmiðunum í raun. Undirliggjandi er það viðhorf að landbúnaður sé eiginlega til vandræða vegna þess að hann losi gróðurhúsalofttegundir, eins og reyndar allar mannlegar athafnir. Hér má sjá fingraför stefnu Evrópusambandsins í landbúnaðarmálum sem hefur birst mjög illilega til að mynda í Hollandi þar sem meginmarkmiðið í landbúnaðarmálum virðist vera að draga úr umfangi landbúnaðar. Miðflokkurinn hefur lagt fram heildstæða stefnu í landbúnaðarmálum með alvörulausnum. Það hefur lítið verið gert með það af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Í staðinn fáum við hér plagg með nokkrum frösum en það virðist til þess ætlað að undirbyggja samdrátt (Forseti hringir.) í framleiðslu landbúnaðarafurða á Íslandi á grundvelli umhverfisstefnu Evrópusambandsins og því getum við ekki stutt þetta.