landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Frú forseti. Hér erum við að ræða um stefnu í landbúnaðarmálum til næstu 17 ára og það er mikið um falleg orð þarna en það er erfitt að sjá hvort allt verði þetta gert á síðasta sextánda eða sautjánda ári stefnunnar eða hvort við náum kannski að fara að byrja á einhverju af þessu. Hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson orðaði það vel hér áðan, þetta er stefna ríkisstjórnarinnar. Við hefðum viljað sjá okkur hugsa miklu meira út fyrir boxið, finna nýjar lausnir og koma með nýjar aðferðir til að tryggja það að bændur geti verið með viðunandi rekstur og þess vegna munum við í Pírötum sitja hjá.