Skaðaminnkun.
Herra forseti. Ég þreytist ekki á að nefna þegar við erum að tala um þennan málaflokk að við verðum að átta okkur algerlega á grunnforsendunni sem liggur á bak við allt og það er auðvitað það að alkóhólismi er sjúkdómur. Fíklar eru veikir, neyslan er ákveðið einkenni veikinnar. Það gerir það ekki að verkum að þeir sem eru undir áhrifum, fíklar, alkóhólistar, séu ekki ábyrgir gjörða sinna. Gerist þeir brotlegir við lög með einhverjum hætti, fremja ofbeldisverk, keyra undir áhrifum eða þess háttar, þá er neyslan ekki afsökun og getur ekki svipt þá refsingu. En þetta einkenni veikindanna sem er einmitt neysla — það er nú oft þannig að fólk sem er með brenglaða hugsun og sækir í vímu er ekkert endilega rosalega mikið í vímunni að velta því fyrir sér hvort vímuefni sé löglegt eða ólöglegt — er síðan andlag einhvers konar refsingar. Þá erum við í raun og veru, finnst mér, búin að missa sjónar á því að þetta er einmitt heilbrigðisvandi. Það er hins vegar ekki einangrað svar út af fyrir sig að ætla sér að koma með einhvers konar refsileysi gagnvart vörslunni og láta þar við sitja. Ef við ætlum að gera einhvers konar breytingar á kerfinu í þá veru þá þurfum við auðvitað líka að svara næstu spurningu sem er: Hvað gerum við svo? Hvað gerum við þegar við erum að mæta veikum einstaklingi á götunni? Við ætlum ekki að sekta hann eða refsa honum. En viljum við ekki frekar bjóða upp á einhvers konar úrræði sem geta mögulega hjálpað viðkomandi til betra lífs, eins og hv. þm. Tómas Tómasson kom hérna inn á? Þetta er ofureinfaldlega flókinn vandi en það er algjör grunnforsenda og við verðum alltaf að hafa það í huga að við eigum ekki að refsa veiku fólki nema það sé að brjóta af sér með öðrum hætti en bara því að svala fíkninni, sem er veikin.