fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Ef ég gæti svarað þessari spurningu þá gæti ég bara farið heim og fengið peningana í áskrift. Varðandi þetta podkast sem ég sagði ykkur frá áðan, að þegar podkastið fór í loftið kemur 15 ára gamall sonarsonur minn til pabba síns og segir: Pabbi, hann afi er legend. Það voru allir hans félagar, 15 ára í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, að hlusta á podkast. Ég vissi ekki hvað podkast var, ég er gamall karl. Er þetta ekki bara spurningin um, með leyfi forseta: If you can´t beat them, join them? Við verðum bara að finna út úr því hvernig hægt er að nálgast þjóðina í gegnum þetta nýja umhverfi sem við lifum í.