Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[17:46]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og hugleiðingarnar til mín. Já, það er rétt, ég tel að svona styrkja- og stuðningskerfi þurfi að vera svolítið víðtækt. Ég er t.d. þeirrar skoðunar að það að vera ekki með þessi boð og bönn í kringum auglýsingar gæti verið leið fyrir einkarekna miðla til að sækja sér einhverjar tekjur. Ég hef aldrei getað skilið hvers vegna menn fara svona langt í því að banna áfengisauglýsingar eða annað slíkt eins og við þekkjum auðvitað úr umræðunni. Það gæti verið eitt. Skattalegar ívilnanir eru eitthvað sem getur mjög vel komið til greina líka.

Það sem ég er að reyna að benda á er það, og það kom nú ágætlega fram í ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur líka, að vandinn er þannig og hann er svo fjölþættur að það er ekki einhver ein lausn til við þessu. Við erum svolítið föst oft í því að tala um eina lausn í einu. Sérstaklega er það nú kannski mest rætt í tengslum við Ríkisútvarpið. Þetta þarf að vera samspil allra þessara þátta en aðallega finnst mér að við eigum að taka Norðurlöndin til fyrirmyndar í því að þau líta svo á að fjölmiðlar séu þannig stofnanir, séu þannig fyrirtæki að lýðræðið fáist ekki þrifist án þeirra. Það þýðir að við þurfum auðvitað að kosta ýmsu til. Beinir styrkir held ég að þurfi alltaf að vera hluti af því en þeir eiga ekki að vera markmið í sjálfu sér. Ef við getum búið til einhvers konar umræðu sem kemur í veg fyrir beina styrki þá er ég hrifnari af því. Stundum hefur verið sagt að beinir styrkir, og það er rætt um það í nefndaráliti meiri hlutans, vinni gegn aðhaldshlutverki fjölmiðla. Ég held að það eigi bara við ef fjölmiðillinn þarf að fara á hverju ári, eða með mjög stuttu millibili, til að sækja þennan beina stuðning. Fyrirsjáanlegt styrktarkerfi til fjölmiðla, beinn stuðningur til lengri tíma er það síður. Ástæðan fyrir því að það er nefskattur hjá RÚV en það er ekki á fjárlögum er m.a. sú (Forseti hringir.) að þá er ekki hægt að klippa á fjárveitingar með einföldum hætti ef miðillinn er óþægur.