nafnskírteini.
Forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um nafnskírteini. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um nafnskírteini. Með þeim verði lagður grundvöllur að útgáfu öruggra persónuskilríkja sem eru, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, einnig gild ferðaskilríki á Evrópska efnahagssvæðinu.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá þessu í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega að nefndin fjallaði um varðveislutíma lífkennaupplýsinga. Að mati meiri hlutans er það grundvallarforsenda fyrir öryggi nafnskírteina að hægt sé að treysta því að handhafi skírteinis sé sá sem hann segist vera. Söfnun og varðveisla lífkennaupplýsinga stuðlar að því að tryggja að svo sé. Þá tryggir söfnun og varðveisla slíkra upplýsinga einnig öryggi við útgáfu og notkun nafnskírteina, verndar einstaklinga gegn auðkennaþjófnaði og kemur í veg fyrir að fölsuð nafnskírteini fari í umferð. Aðgengi að slíkum upplýsingum getur reynst afar mikilvægt þegar bera þarf kennsl á látna einstaklinga sem ekki eru með persónuskilríki á sér eða þegar hópslys eiga sér stað. Þá mælir frumvarpið fyrir um að einungis þeim sem hafa til þess viðeigandi færni og sérstakt leyfi Þjóðskrár Íslands skuli heimilt að safna lífkennaupplýsingum. Meiri hlutinn leggur áherslu á, líkt og rakið er í frumvarpinu, að við þá söfnun skuli gætt að réttindum umsækjanda í samræmi við grundvallarreglur mannréttindasáttmála Evrópu og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins þannig að hann haldi virðingu sinni þótt erfiðleikar komi upp við söfnun upplýsinganna. Þá skuli gæta ýtrustu öryggiskrafna við varðveislu lífkennaupplýsinga.
Þá fjallaði nefndin um synjun útgáfu nafnskírteina. Í 1. mgr. 6. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að Þjóðskrá Íslands skuli synja um útgáfu nafnskírteinis, sem telst gilt ferðaskilríki, ef umsækjandi er eftirlýstur af lögreglu, gefin hefur verið út handtökuskipun á hendur honum eða lagt á hann farbann samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála. Í 2. mgr. sömu greinar segir svo að Þjóðskrá Íslands sé heimilt að afla upplýsinga samkvæmt 1. mgr. frá lögreglu og öðrum stjórnvöldum. Að mati meiri hluta nefndarinnar er mikilvægt að við útfærslu og framkvæmd þessa ákvæðis verði gætt að kröfum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Nefndin fjallaði að auki um útgáfu nafnskírteina til erlendra ríkisborgara. Skv. 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að íslenskir ríkisborgarar sem uppfylla skilyrði laganna eigi rétt á að fá gefið út nafnskírteini samkvæmt umsókn þar um. Í tengslum við þetta fjallaði nefndin um þá stöðu sem ákveðinn hópur flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd er í varðandi skort á aðgengi að rafrænum skilríkjum. Þessi hópur lendir iðulega í vandræðum með að sækja sér ýmsa opinbera þjónustu þar sem vegabréf þeirra eru útrunnin og persónuskilríki frá heimalöndum þeirra eru ekki tekin gild hér á landi. Þá veita dvalarleyfisskírteini útgefin á grundvelli 54. gr. útlendingalaga, nr. 80/2016, ekki aðgang að slíkum skilríkjum. Rætt var í nefndinni um hvort rétt væri að bæta ákvæði við frumvarpið þar sem erlendum ríkisborgurum yrði heimilt að fá útgefin nafnskírteini á grundvelli þess, að nánar tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Meiri hlutinn telur afar brýnt að þessum hópi og öllum sem hér búa verði auðveldað eftir fremsta megni aðgengi að rafrænum skilríkjum svo þau geti sótt sér opinbera þjónustu og aðlagast samfélaginu á skilvirkan hátt. Á hinn bóginn telur meiri hlutinn að ákvæði sem heimili erlendum ríkisborgurum að fá útgefin nafnskírteini, sem ætlunin er að eingöngu íslenskir ríkisborgarar eigi rétt á að fá útgefin, sbr. 1. gr. frumvarpsins, ekki eiga heima í þessu frumvarpi. Að mati meiri hlutans verður betur leyst úr aðgengi framangreinds hóps að rafrænum skilríkjum með breytingu á reglugerð nr. 100/2020, um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti, og er sú reglugerð nú til umfjöllunar á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem lagt er til að dvalarleyfiskortum útgefnum af Útlendingastofnun verði bætt við 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Því er við þetta að bæta að samkvæmt okkar upplýsingum hefur ráðherra þegar undirritað þá reglugerð.
Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lagt til að innleiðingarákvæði bætist við frumvarpið. Við samningu frumvarpsins var m.a. horft til skilyrða reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1157 frá 20. júní 2019 um að efla öryggi kennivottorða borgara Sambandsins og dvalarskjala sem gefin eru út til handa borgurum Sambandsins og aðstandendum þeirra sem nýta sér réttinn til frjálsrar farar. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar eftir að frumvarpinu var dreift á Alþingi.
Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar gildistöku frumvarpsins, að gildistöku verði frestað um þrjá mánuði eða til 1. desember 2023. Er það gert til að stuðla að því að Þjóðskrá Íslands, sem fær það hlutverk að gefa út hin nýju nafnskírteini, verði í stakk búin til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Þá leggur nefndin til eina lagatæknilega breytingu sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir þetta álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Bergþór Ólason, Helga Vala Helgadóttir, Jódís Skúladóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Tómas A. Tómasson. Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur áliti þessu.
Virðulegur forseti. Ég hef nú farið yfir helstu þætti í nefndarálitinu og langar að ítreka það sem hér kom fram, að það fór töluverður tími hjá nefndinni í að ræða stöðu flóttamanna eða þeirra sem hér hafa fengið dvalarleyfi. Niðurstaðan, eins og stjórnsýslan var búin að leggja til, var sú að þessari reglugerð sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fer með yrði breytt þannig að dvalarleyfiskortin yrðu grunnur að rafrænum skilríkjum. Við teljum afar brýnt að svo verði því að við þekkjum það öll sem erum að reyna að fóta okkur á Íslandi og ná okkur í ýmiss konar þjónustu og annað, að rafræn skilríki eru orðin lykillinn að margvíslegri opinberri þjónustu. Það er gott svo lengi sem tryggt er að allir geti nýtt þau skilríki og þá þjónustu.
Því hefur verið kastað fram, alla vega í sölum þingsins, að þetta sé með lengstu meðgöngum sem hægt er að hugsa sér á jafn einföldum pappírssnepli eins og nafnskírteini eiga að vera. Það kann að vera eitthvað til í því gríni, en ég held engu að síður að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða. Það var líka svolítil umræða um hvort þetta þyrfti því að fólk væri nú með ökuskírteini og vegabréf. Við teljum fulla ástæðu til þess að hér séu nafnskírteini sem eru fullgild skilríki því að auðvitað eru ekki allir með bílpróf, fólk vill kannski ekki ferðast með vegabréfið sitt alla daga og svo er það auðvitað ekki þannig að allir eigi vegabréf. Því er þetta mikilvæg viðbót. Það er einnig mikilvægt þegar nafnskírteini eru gefin út að þau uppfylli skilyrðin sem hér er tekið á og eru auðvitað hluti af þessu Evrópuregluverki sem við höfum tekið upp. Það kom líka ítrekað fram hjá fulltrúum ráðuneytisins varðandi þetta mál að auðkennaþjófnaður væri orðinn stærra og stærra vandamál og er þeim mun mikilvægara að við stöndum vel að þessu og tryggjum að ekki fari á milli mála þegar fólk sækir um slík skilríki að um rétta einstaklinga sé að ræða.