nafnskírteini.
Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir góða framsögu. Eitt sem ég tók eftir í frumvarpinu og sá hvergi nefnt heldur í nefndarálitinu var það hvort eitthvað væri hugsað út í stafrænt nafnskírteini. Þá er ég bara að hugsa um það sama og við höfum verið að gera varðandi ökuskírteini, að þurfa ekki lengur að vera með það í veskinu sínu og vera með veskið með sér, heldur dugar að vera með ökuskírteinið á símanum til að sýna það í þeim tilfellum þar sem þú þarft að sanna hver þú ert. Ég tók ekki eftir neinu sem talar um það, en ég veit ekki hvort það þarf að vera í lögunum að það megi nota stafræn skírteini. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að stafræn útgáfa myndi ekki gilda sem ferðaskilríki af því að við erum ekki enn þá komin með Evrópusambandsreglugerðir um stafræn ferðaskilríki, en mér skilst að bæði sé verið að vinna í því og stafrænum ökuskírteinum.
Mig langaði að vita hvort nefndin hefði eitthvað rætt þetta með stafræna hlutann. Í tengslum við það er í 2. gr. talað um að sýslumenn, lögregla og önnur stjórnvöld taki við umsóknum. Nú er ég ekki lögfræðingur þannig að mig langar að vita hvort það væri ekki nægilegt ef hægt væri t.d. að sækja um slíka hluti — kannski ekki ná í þá og fá þá prentaða, en sækja um þá — í gegnum Stafrænt Ísland.