Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

nafnskírteini.

803. mál
[19:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú er mér vandi á höndum því að ég bara get ekki svarað spurningu hv. þingmanns. Mér finnst það mjög leiðinlegt og ég er svona að reyna að taka það úr einhvers konar heilaþoku og reyna að muna hver umræðan um þetta var, því að ég minnist þess þó að við höfum spurt um þessi atriði. Því miður þori ég ekki að standa í þessum stól og gefa einhver svör en ég skal svo gjarnan forvitnast um þetta mál og fletta upp í minni nefndarritara hver viðbrögðin voru hvað það varðar. Ég veit þó að þegar tekin var ákvörðun um að ökuskírteini yrði rafrænt, sem var ákvörðun sem ég fagnaði mjög og hæstv. þáverandi dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, tók á sínum tíma, þá var það undir þeim merkjum að ökuskírteini hefði fengist útgefið og því væri þetta í rauninni ákveðin birting á gildu ökuskírteini í gegnum rafræna gátt. Ég hygg að það hafi verið mjög góð leið. Ég veit þó að það er hægt að falsa þessi rafrænu skilríki og mér skilst af umræðunni hér um nafnskírteini og annað á göngum þingsins að þetta sé það sem unga fólkið undir aldri noti kannski stundum til að koma sér inn á skemmtistaði. Þetta var gagnrýnt á sínum tíma en stundum finnst mér að það megi alveg stíga ákveðin skref ef þau eru ekki þeim mun hættulegri. Því myndi ég alla vega sjálf mælast til þess að hugað væri að því að hægt yrði að fá þessi skilríki þegar þau hafa verið gefin út og fullvissa er um að viðkomandi sé sá sem hann er, að hægt væri að fá einhvers konar rafræna birtingu á þeim. Á sama tíma þurfum við auðvitað stöðugt að vinna að því að það sé eins öruggt og kostur er.