Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

nafnskírteini.

803. mál
[19:19]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við Píratar sýndum fram á það í aðdraganda kosninganna 2021 að það er hægt að búa til birtingarmynd í símum sem lítur út eins og ökuskírteini, en það var ástæðan fyrir því að allar kjörstjórnir fengu lesara eða forrit í símana hjá sér til að geta tékkað á því hvort þetta væri alvöruskírteini. Það er náttúrlega eitthvað sem t.d. væri hægt að láta dyraverði og aðra fá.

Mig langaði í seinna andsvarinu mínu að spyrja um tvo hluti og ég vona að ég nái að tala um þá báða. Fyrri hlutinn er sá að í 5. gr. segir, með leyfi forseta:

„Við útgáfu nafnskírteinis, sem telst ekki gilt ferðaskilríki, til umsækjanda sem er yngri en 13 ára skal liggja fyrir samþykki þess sem fer með forsjá barnsins og nægir þá samþykki annars forsjáraðilans.“

Mig minnir að þetta sé öfugt þegar maður sækir um vegabréf og langaði bara að vita hvort hv. þingmaður mundi af hverju bara annar forsjáraðilinn dugir hér en þegar sótt er um vegabréf þurfi báða.

Hitt sem mig langaði að spyrja um varðar ákvæði til bráðabirgða um að nafnskírteini sem gefin voru út fyrir 1. janúar 2013 falli úr gildi. Nú er talað um það hér aðeins fyrr að þegar þú sækir um þurfirðu að sanna hver þú ert. Mig langar að spyrja hvort fólkið sem er með þessi gömlu nafnskírteini í dag geti nýtt þau til að sýna hver þau eru þegar það sækir um þetta nýja eða hvort það sitji allt í einu uppi með engin gild skilríki til að sanna hver þau eru. Því miður er slatti af fólki sem er bara með nafnskírteini eða einhvers konar gömul nafnskírteini í dag.