153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

staða efnahagsmála og náttúruvernd.

[15:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég verð að fylgja aðeins eftir fyrirspurn hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur en geri þó athugasemd við það að hv. þingmaður hafi tekið sérstaklega fram að ríkisstjórnin væri loksins að vakna. Hvað vitum við um það hvort ríkisstjórnin er vöknuð? Við vitum að hún hélt fund en þessi ríkisstjórn hefur svo sem oft haldið fundi áður. Ég hvatti nú til þess hér ekkert alls fyrir löngu að síðustu dagar þingsins yrðu teknir í það í samvinnu við ríkisstjórnina að taka á þessu efnahagsástandi, þessu ófremdarástandi sem við horfum upp á. Það var ekki brugðist við því en það var haldinn fundur í dag. Merkin eru hins vegar ekkert sérstaklega traustvekjandi. Hæstv. forsætisráðherra heldur áfram að segja að það sé allt að ganga frábærlega, ekki hvað síst vegna þess að ríkisstjórnin sé búin að eyða svo miklum peningum eða verja svo miklum peningum í mikilvæga málaflokka. En hvað hafa menn fengið fyrir? Það fást aldrei nein svör við því. Ef búið er að auka útgjöld til heilbrigðismála svona mikið, hvernig stendur á því að biðlistarnir halda bara áfram að lengjast? Ef búið er að auka útgjöld til velferðarmála að öðru leyti þetta mikið, af hverju líður fólki ekki betur, af hverju er þjónustan ekki betri? Af hverju er hér ófremdarástand? Við því fást ekki svör nema hvað nú hefur hæstv. forsætisráðherra brugðið fyrir sig tungutaki hæstv. fjármálaráðherra og er farin að tala um frumjöfnuð. Við eigum öll að vera glöð yfir góðum frumjöfnuði. Ég veit ekki hvernig það færi hjá heimili sem tæki endalaust lán og borgaði meiri og meiri vexti en útskýrði í sífellu að frumjöfnuðurinn væri enn þá mjög góður. En það er nýjasta afsökun ríkisstjórnarinnar og sú sem meira að segja hæstv. forsætisráðherra hangir á núna.

En ég spyr einfaldlega, fyrst það var haldinn fundur ríkisstjórnarinnar sem kláraðist núna ekki alls fyrir löngu í ráðherrabústaðnum: Hvað kom út úr þeim fundi? Hvers má vænta frá ríkisstjórninni núna á lokametrum þinghaldsins um viðbrögð, alvöruviðbrögð við efnahagsástandinu í landinu?