staða efnahagsmála og náttúruvernd.
Herra forseti. Já, það eru haldnir fundir. Það var líka haldinn fundur formanna flokkanna í morgun sem formaður Miðflokksins komst því miður ekki á; við þurfum að ræða það mál hér eftir þennan fyrirspurnatíma. En við skulum ræða stöðuna eins og hún er, já, gerum það. Það er enginn, hvorki forsætisráðherra né hæstv. fjármálaráðherra, sem heldur því fram að allt gangi frábærlega. Það eru allir sammála um það sem ræða þessi mál af einhverri sanngirni, sem ræða þessi mál málefnalega, að staðan er snúin. Af hverju? Af því að við erum með mikla verðbólgu, við erum með háa vexti. En á sama tíma erum við með gott atvinnustig, lítið atvinnuleysi og mikinn hagvöxt. Það eru mikil umsvif í efnahagslífinu sem segir mér einfaldlega að fólk hefur trú á íslensku hagkerfi. Þýðir það að það sé ástæða til að gera ekki neitt? Nei, og við höfum verið að gera ýmislegt. Ég fór yfir það hér áðan hvernig við höfum annars vegar verið að standa vörð um afkomu fólksins í landinu, sérstaklega hinna tekjulægstu — ég nefni öryrkja og bætur almannatrygginga, ég nefni barnabótakerfið, ég nefni húsnæðisstuðninginn — en um leið erum við að boða aðhald upp á 18 milljarða á næsta ári og að auki tekjuöflun upp á 18 milljarða á næsta ári til þess að ríkisfjármálin sendi skýr skilaboð sem slái á verðbólguna. Og já, við höfum þá trú á íslensku hagkerfi að við teljum unnt að flýta fjármálareglunum um ár. Við teljum sömuleiðis að staðan sé góð og bendum á frumjöfnuðinn sem hv. þingmaður getur gert grín að en er hins vegar breyta sem tekið er tillit til þegar við ræðum um opinber fjármál.
Er ég að segja að allt gangi frábærlega? Nei, en það er margt sem gengur vel. Hér er talað eins og húsið brenni, sumir hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar gera það en líta t.d. algerlega fram hjá því hvernig velsældarvísarnir hafa verið að þróast. Ég benti á það í síðustu viku að meiri hluti vísanna sýndi að samfélaginu gengi vel. Þegar við horfum á Social Progress Index er Ísland í topp fimm. Hvernig stendur á því? Miðað við lýsingar stjórnarandstöðu getur það ekki staðist skoðun? (Forseti hringir.) En já, við erum sammála um það innan ríkisstjórnar, og vonandi innan Alþingis, (Forseti hringir.) að full færi séu til þess að ganga lengra en sú fjármálaáætlun sem liggur fyrir þinginu boðar.