153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

staða efnahagsmála og náttúruvernd.

[15:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þetta var eina svarið um afrakstur fundarins, að menn væru sammála um að það þyrfti að ganga lengra. Og hvenær ætla menn þá að byrja að ræða það í þessari ríkisstjórn hvernig eigi að ganga lengra? Verður það eftir að þingið hefur lokið störfum? Verður það í kvöld eða á morgun? Ríkisstjórnin virðist þó hafa náð saman um að það væri mikilvægt að ganga lengra, sem er áfangi, vissulega, að til viðbótar við það að hækka skatta á landsmenn um 18 milljarða og draga úr útgjöldum um 18 þá eigi að ganga lengra. En hæstv. ráðherra má annaðhvort svara þeirri spurningu hvenær standi til að gera það — ég á ekki endilega von á því að hæstv. ráðherra geri það, ég hugsa að það sé ekki vitað — eða spurningunni um það hvort hæstv. ráðherra geti tekið undir með hæstv. umhverfisráðherra, sem hefur miklar áhyggjur af áformum borgarinnar um að reyna að fækka annars vegar bifreiðum sem mest en einnig grænum svæðum. Hæstv. ráðherra gerði sig gildandi í umræðu um áform í Skerjafirði en svo, þegar hann var spurður hér af mér í þinginu, sagðist hann í rauninni ekkert geta gert. En myndi hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) taka undir þessar áhyggjur hæstv. umhverfisráðherra? Hún má svara báðum spurningum eða annarri hvorri (Forseti hringir.) en helst alla vega annarri.