úttekt á sameiningu framhaldsskóla.
Herra forseti. Í menntastefnu til ársins 2030 er lögð áhersla á heildstæða skólaþjónustu þvert á skólastig. Heildstæða stefnan er ekki meiri en svo að málaflokkunum er dreift á mismunandi ráðuneyti sem öll virðast hafa sjálfstæða stefnu. Á sama tíma og háskólaráðherra vill fjölga nemendum í bóknámi í háskóla hefur mennta- og barnamálaráðherra sagst ætla að draga úr brottfalli drengja, m.a. með því að efla verknám á kostnað bóknáms. Hann hefur auk þess sagt að tölur sýni að nemendum í bóknámi muni fara fækkandi á næstu árum. Fullyrðingin byggir reyndar á mjög veikum grunni. Þar kemur bæði til mikil fólksfjölgun hérlendis en einnig sökum þess að enn hækkar hlutfall unglinga sem fara í framhaldsskóla. Það mun því líklega fjölga bæði í verk- og bóknámi á næstu árum. Nú vill svo til að sem foreldri hef ég reynslu af tveimur af þeim skólum sem á að sameina. Börnin mín sóttu nám í VMA annars vegar og MA hins vegar. Sá fyrri er verknámsskóli með nemendum á mjög ólíkum aldri en sá síðari hefðbundinn bóknámsskóli með bekkjarfyrirkomulagi þar sem nemendur eru á mjög svipuðum aldri. Reynslan af báðum þessum gjörólíku skólum var mjög góð, enda hentaði ólíkt fyrirkomulag þeirra ólíkum þörfum barnanna.
Herra forseti. Nú er ekki ýkja langt síðan að anað var út í styttingu framhaldsskóla án þess að fyrir lægju fullnægjandi gögn sem styddu breytinguna. Nú á að ráðast í aðra stóra breytingu án þess að gerð hafi verið almennileg úttekt á því hvernig til tókst með styttinguna og hvaða áhrif hún hafði á nemendur. Mig langar því einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki væri skynsamlegra að láta gera slíka úttekt áður en hrapað er að öðrum stórum breytingum í kerfinu.