153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

úttekt á sameiningu framhaldsskóla.

[15:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og fagna því að við skulum vera að ræða málefni menntakerfisins hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Áður en ég kem að fyrirspurninni vil ég segja, af því að hv. þingmaður vitnaði til þess að unnið væri að frumvarpsgerð um heildstæða skólaþjónustu og hrærði því saman við að það væri einhvers konar ágreiningur milli mín og háskólaráðherra um það, að það er þvert á móti. Það sem er verið að skoða með heildstæða skólaþjónustu er leik-, grunn- og framhaldsskólastigið vegna þess að það hefur ekki verið heildstæð skólaþjónusta þar. Í dag fer reyndar fram þriðji vinnufundur í Hörpu þar sem um 500 manns taka þátt í því að móta þessa nýju löggjöf.

Hv. þingmaður vitnar til vinnu sem nú er í gangi við að skoða hvernig við getum eflt framhaldsskólakerfið okkar og ráðstafanir sem við höfum verið að vinna þar til að skoða ólíkar sviðsmyndir um hvernig mögulega væri hægt að sameina ákveðna skóla með það að markmiði að skapa svigrúm fyrir þessi verkefni. Ekkert hefur verið ákveðið um þessar sameiningar. Það er verið að vinna fýsileikakönnun á því, hvort þær séu fýsilegar. Ástæða þess að við erum að gera þetta er sú að það eru gríðarlega margar áskoranir sem við þurfum að takast á við sem samfélag í íslensku skólakerfi og við þurfum að skapa fjárhagslegt svigrúm til þeirra. Ein af þeim er starfsnám, sem hv. þingmaður vitnaði til, og aukning þar á næstu árum, sem er staðreynd. Það eru þó fleiri atriði þarna sem lúta til að mynda að fjölda nemenda af erlendum uppruna, fjölda nemenda sem þarfnast aukins félagslegs stuðnings o.s.frv. Þegar við horfum á framhaldsskólakerfið þá eru tækifæri þar til að gera betur. Við vitum til að mynda að hér á höfuðborgarsvæðinu reiknum við með að hægt sé að fjölga bóknámsnemum um 1.000 án þess að ráðast í fjárfestingar. Það er það sem við erum að gera. Við erum að skoða með hvaða hætti við getum nýtt fjármuni betur í kerfinu okkar til þess að geta miðlað því (Forseti hringir.) til stærri verkefna. Þetta snýr ekki (Forseti hringir.) að styttingu framhaldsskólans, þetta snýr ekki að þeirri þróun (Forseti hringir.) sem verður á næstu árum í bóknámi heldur að því að skapa svigrúm til þessara mikilvægu verkefna.