úttekt á sameiningu framhaldsskóla.
Herra forseti. Þessir tveir hæstv. ráðherrar sem ég nefndi áðan hafa a.m.k. talað fullkomlega í kross að undanförnu. Ég veit að áform ráðherra snúa ekkert að styttingunni eða að gera hana upp, en hvernig væri að gera það? Áhrif hennar lifa auðvitað með okkur áfram. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra að það eru gríðarlegar áskoranir í framhaldsskólakerfinu og menntakerfinu almennt, en það er furðulegt að birtast með lausnirnar áður en fólk greinir a.m.k. hverjar áskoranirnar eru. Ég spyr bara: Hvers virði eru yfirlýsingar ráðamanna ef forsendur nemendanna sjálfra eru aldrei lagðar á vogarskálarnar heldur fyrst og fremst kostnaður, atvinnulífið eða guð má vita hvað? Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hreint út, hvort hann viðurkenni ekki bara ákveðið frumhlaup í málinu, enda virðist samráð við skólasamfélagið hafa verið a.m.k. í skötulíki.