153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

úttekt á sameiningu framhaldsskóla.

[15:26]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil endurtaka það sem ég sagði hér áðan: Við erum að kanna fýsileika þess að auka samstarf eða ráðast í sameiningar á einstaka skólum til þess (Gripið fram í.) — það er rangt hjá hv. þingmanni sem grípur hér frammí — að skapa svigrúm fyrir nauðsynlegar aðgerðir sem þarf að ráðast í, m.a. fjölgun í starfsnámi en líka að taka betur utan um nemendur af erlendum uppruna, efla námsgagnaútgáfu og fleiri verkefni sem sannarlega þarf að skapa svigrúm til. Það er þannig á málefnasviði mennta- og barnamála að við teljum að svigrúm sé til að nýta fjármagn betur einmitt til handa nemendum og þeirri kynslóð sem er að ganga í gegnum skólakerfið núna. Hluti af þeirri fýsileikakönnun sem nú er í gangi er að kanna nákvæmlega það sem hv. þingmaður er að gefa sér að búið sé að taka ákvörðun um. En ég fagna því að hv. þingmaður skuli taka þetta upp hér og ég hlakka til að ræða þetta við hann þegar (Forseti hringir.) við höfum eitthvað í höndunum um könnun á fýsileika þessa. Við þurfum að skapa svigrúm fyrir verkefnin sem þarf að ráðast í og það er það sem við erum (Forseti hringir.) að reyna að gera innan þess ramma sem við höfum varðandi fjárveitingar.