153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

skipun í stjórnir opinberra stofnana.

[15:31]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Þegar hæstv. ráðherra var inntur eftir því hvers vegna hann hefði nú ekki farið að tilnefningu flokksins þá var nú engin auðmýkt í svörunum. Það var bara einfaldlega: Ég ræð og það er það sem stendur. Ég ræð. Það hefði þá verið bragur á því ef hæstv. ráðherra hefði látið vita af því að hann treysti sér ekki til að skipa þann sem hér stendur í stjórnina áður en til skipunarinnar kom. En það var ekki svo því að hann réð.

Þessu máli er auðvitað ekki lokið vegna þess að sá sem hann réð — það er verulega umdeilanleg skipan sem ég tel rétt að Fjármálaeftirlitið fari í gegnum. Mér finnst leitt að hæstv. ráðherra skuli ekki virða sjónarmið þess flokks sem tekur þátt í því að velja sér fulltrúa af meiri svona — þetta lyktar örlítið af lítilsvirðingu. Er Flokkur fólksins einhvers annars flokks stærð hjá hæstv. ráðherra? (Forseti hringir.) Ég vil vekja athygli forsætisráðherra á þessu máli því að hún er auðvitað (Forseti hringir.) yfirmaður stjórnsýslunnar í landinu og á ekki að láta svona yfir okkur ganga.