153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

skipun í stjórnir opinberra stofnana.

[15:33]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Nú verð ég að viðurkenna að ég veit ekkert hvert hv. þingmaður er að fara og væri æskilegt og bara mjög gott ef hann myndi bera þau erindi upp varðandi einhverjar aðrar tilnefningar þar sem ég þekki ekki hvað hann er að vísa til. En varðandi Flokk fólksins þá gildir það að sjálfsögðu um hann eins og alla aðra flokka að þegar kemur að því að tilnefna í stjórnir á vegum ríkisins, (SigurÞ: Það eru engin dæmi um það.) þá er eitthvert samræmi þar á milli stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðunnar hins vegar. Þegar það kemur slík tillaga þá skal hún skipuð karli og konu til að tryggja kynjajafnrétti í stjórnum og því hef ég fylgt eftir. (Gripið fram í: … konu.) Ég veit ekki til hvaða sjónarmiða eða samtala hv. þingmaður er að vísa hér. Ég kannast ekki við þau.