153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

bann við hvalveiðum.

[15:34]
Horfa

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir (P):

Herra forseti. Á laugardaginn voru mótmæli gegn hvalveiðum á Íslandi og nú hafa meira en 18.000 landsmenn skrifað undir undirskriftalista til að stöðva þessa starfsemi sem svo oft hefur komið fram í fjölmiðlum að skili taprekstri ár eftir ár, sé ótrúlega sársauka- og kvalafull fyrir þessi spendýr og fari þvert gegn öllu sem Ísland er að reyna að gera í loftslagsmálum og í aðgerðum gegn vistkerfaröskun. Það er afskaplega slæmt fordæmi að fyrirtæki hérlendis geti bara ráðið lögmenn til að pönkast í Matvælastofnun og komist upp með það og komist upp með að ganga ekki frá olíutanki sem hefur lekið í opið vatnsból og komist upp með að níðast á dýrum og allt til hvers? Til þess að hvalkjöt geti verið nýtt í hundamat í Japan. Meiri hluti landsmanna er á móti hvalveiðum enda hagnast enginn á þeim og mér heyrist af ummælum hæstv. ráðherra í fjölmiðlum að ráðherra sé sammála því að hvalveiðar heyri fortíðinni til. En því spyr ég: Hvernig má þá vera að hæstv. ráðherra þori ekki að standa með eigin sannfæringu, þori ekki að standa með áliti þjóðarinnar, þori ekki að standa með eigin yfirlýstum áætlunum í loftslags- og vistkerfamálum og með reglugerðum landsins sem þessar hvalveiðar hafa margbrotið? Hvers vegna þorir hæstv. ráðherra ekki að taka rétta ákvörðun og stöðva hvalveiðar strax?