bann við hvalveiðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, sem er mjög mikilvæg. Það er mjög mikilvægt að halda þessari umræðu hér til haga. Í raun og veru endurspeglar þessi fyrirspurn að það er að verða breyting á almenningsálitinu um þessi mál og sú umræða sem hefur fylgt því sláandi myndefni og skýrslu sem liggur fyrir eftir þá reglugerð sem ég setti um velferð dýra við veiðar á hvölum, hefur í raun og veru snúið umræðunni og opnað hana miklu meira en við höfum áður séð. Og því ber að fagna. Það er hins vegar þannig, eins og hv. þingmaður veit, að ráðherrar geta einungis framkvæmt það sem löggjafarvaldið hefur gefið þeim vald með lögum til að gera og samkvæmt ráðgjöf sem lögfræðingar matvælaráðuneytisins hafa gefið mér er ekki að finna skýra lagastoð fyrir stjórnsýsluviðurlögum, svo sem afturköllun leyfis að svo búnu.
En það sem þessi umræða dregur hins vegar fram er hversu miklar breytingar hafa átt sér stað á samfélaginu. Við erum að setja umfjöllun og umræðu um dýravelferð miklu meira á dagskrá en við höfum áður gert. Við eigum að spyrja okkur sjálf þeirrar spurningar hvort við sem samfélag viljum heimila að kálffullar langreyðarkýr séu hundeltar klukkustundunum saman og margskotnar með sprengjukutlum þangað til að lokum dregur af þeim og þær gefast upp. Það er spurningin sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir. Það er spurningin sem ég hef á mínu borði og við sem kjörnir fulltrúar getum ekki vikist undan þessari umræðu frekar en aðrir. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta á dagskrá hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma.