bann við hvalveiðum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sín ummæli og fyrir að nefna einmitt það að við getum verið sammála um þetta. En mig langaði að spyrja: Hvaða heimildir þarf þá ráðherra til að stöðva þessar veiðar? Við erum jú löggjafarþingið hér og ráðherra hlýtur að geta upplýst okkur um hvaða lögum þarf að breyta til þess að við getum stöðvað það að allt að 209 hvalir verði drepnir í sumar, þ.e. ef við gerum ekki neitt. Að fela sig á bak við það að við getum ekki gert eitthvað leysir okkur ekki undan þeirri sök í þessu máli. Ég vil endilega spyrja að þessu.