ný vatnslögn til Vestmannaeyja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svarið. Ég vil ítreka hér hversu mikilvægt þetta mál er þessu samfélagi sem Vestmannaeyjar sannarlega eru og í því sambandi má ég til með að nefna að það hefur verið kallað eftir því í mörg ár að tryggja raforkuöryggi til Eyja. Svo gerist það í vetur að bilun kemur upp í eina rafstrengnum til Vestmannaeyja og það í upphafi loðnuvertíðar. Þar fór rafmagnsleiðsla sem menn héldu að myndi aldrei fara. Til að geta klárað loðnuvertíðina og haldið uppi starfsemi í Eyjum má áætla að við höfum verið að brenna um 100 tonnum af olíu á sólarhring í Vestmannaeyjum og er það auðvitað sorgleg staða í landi sjálfbærrar orku. Því hlýt ég að spyrja ráðherra: Hver yrði kostnaður ríkisins ef núverandi vatnsleiðsla myndi gefa sig í Vestmannaeyjum (Forseti hringir.) og hvernig ætti að bregðast við og mæta þeim kostnaði að flytja alla íbúa upp á fastaland t.d.?