Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[16:00]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég held að enginn efist um mikilvægi fjölmiðla í lýðræðishlutverki og það er líka staðreynd að á Norðurlöndunum er almenn samstaða um það að partur af fjölmiðlaumhverfinu er öruggt stuðningsumhverfi einkareknum miðlum til handa. Nú er það þannig að þessi ríkisstjórn er búin að sitja í sex ár. Það er ekkert handfast um það hvað ríkisstjórnin ætlar að gera á fjölmiðlamarkaði utan hvað við erum að greiða atkvæði um þetta afmarkaða frumvarp hér í dag. Ég ætla að styðja þetta frumvarp en hlýt að benda á að á sama tíma og verið er að tala um í nefndaráliti að það sem þurfi sé fyrirsjáanlegt stuðningsumhverfi fyrir fjölmiðla sé eini fyrirsjáanleiki fjölmiðla, samkvæmt því sama nefndaráliti, að þetta fyrirsjáanlega verði lagt niður.