heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. Með frumvarpinu er lagt til að við lög um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um það að heimilt verði frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2028 að ráða heilbrigðisstarfsmann sem náð hefur 70 ára aldri til starfa við heilbrigðisþjónustu sem ríkið veitir. Skilyrði fyrir undanþágunni er að starfið felist í beinum samskiptum við sjúklinga, stoðþjónustu eða rannsóknum í tengslum við þjónustu við sjúklinga, eða handleiðslu yngra heilbrigðisstarfsfólks eða nema.
Lagt er til að ráðning samkvæmt ákvæðinu skuli vera tímabundin og að jafnaði vara í eitt ár í senn og aldrei lengur en í tvö ár í senn. Heimilt verði að endurnýja tímabundna ráðningu þar til heilbrigðisstarfsmaður hefur náð 75 ára aldri. Auk þess er kveðið á um undanþágu frá auglýsingaskyldu.
Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund og umsagnir bárust. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti hv. velferðarnefndar árétta sérstaklega eftirfarandi atriði:
Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er kveðið á um hámarksaldur ríkisstarfsmanna. Þar kemur fram að jafnan skuli segja starfsmanni upp störfum frá og með næstu mánaðamótum eftir að hann nær 70 ára aldri. Í frumvarpinu er lögð til tímabundin undanþága frá þeirri meginreglu sem tekur til heilbrigðisstarfsmanna. Fyrir nefndinni var m.a. rætt um hvort tilefni væri til þess að endurskoða reglur um hámarksaldur almennt, m.a. í ljósi hækkandi lífaldurs og til að tryggja jafna stöðu og á almennum vinnumarkaði.
Í því samhengi bendir meiri hlutinn á að um að umfjöllun um hækkun hámarksaldus í greinargerð með frumvarpinu er að miklu leyti almenn og einskorðast ekki við heilbrigðisstarfsfólk. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á að gera eldra fólki kleift að vera virkir þátttakendur á vinnumarkaði, m.a. með auknum sveigjanleika að því er snertir starfslok og að horft verði til aukins sveigjanleika varðandi starfslok hjá hinu opinbera. Heilbrigðisráðherra reið á vaðið með þessu bráðabirgðaákvæði og er hluti af viðbrögðum hins opinbera við brýnum mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Það skal hins vegar tekið fram að frumvarpinu er ekki einu og sér ætlað að leysa mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins heldur eingöngu að hjálpa til við að bæta mönnun. Með hliðsjón af því telur meiri hlutinn eðlilegt að horft sé til hækkunar hámarksaldurs heilbrigðisstarfsmanna sérstaklega en áréttar að einnig þurfi að horfa til sveigjanlegra starfsloka starfsmanna ríkisins almennt.
Þá fjallaði nefndin um greiðslur í lífeyrissjóði. Í frumvarpinu er ekki sérstaklega kveðið á um meðferð iðgjalds til skyldutryggingar lífeyrisréttinda þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem starfa áfram eftir 70 ára aldur. Fram kemur í greinargerð að frá 70 ára aldri falli skyldubundið lífeyrisiðgjald launagreiðanda vegna launþega niður en launþegi geti kosið að greiða enn iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sömu reglur gildi um slíkar greiðslur og mótframlag launagreiðanda þó að starfsmaður sé orðinn 70 ára. Með þessu gefist heilbrigðisstarfsfólki sem hefur náð 70 ára aldri tækifæri til að starfa áfram, fresta lífeyristöku og safna auknum viðbótarlífeyrisréttindum í séreignarsjóð með tilheyrandi mótframlagi.
Við umfjöllun málsins fyrir nefndinni komu fram sjónarmið þess efnis að í ljósi þess að skyldubundið lífeyrisiðgjald launagreiðanda fellur niður við 70 ára aldur njóta þeir sem kjósa að vinna fram yfir þann aldur lakari kjara en þeir sem yngri eru. Í greinargerð kemur fram að flestir þeir sem frumvarpið varðar greiði skylduiðgjald til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins en samkvæmt samþykktum sjóðsins er framlag launagreiðanda að lágmarki 11,5% af gjaldstofni. Meiri hlutinn bendir á að jafnan er kveðið á um iðgjaldshluta launamanna og mótframlag launagreiðanda í kjarasamningum og eftir atvikum í samþykktum lífeyrissjóða og um meðferð lífeyrissjóðs á mótteknu iðgjaldi eftir 70 ára aldur í samþykktum lífeyrissjóða. Þannig virðast nokkuð ólíkar reglur gilda um meðferð iðgjaldagreiðslna eftir að sjóðfélagi hefur náð 70 ára aldri. Í ljósi þessa telur meiri hlutinn ekki forsendur fyrir því að kveða sérstaklega á um meðferð iðgjalda vegna heilbrigðisstarfsmanna sem starfa við heilbrigðisþjónustu sem ríkið veitir eftir 70 ára aldur í lögum. Meiri hlutinn telur þó nauðsynlegt að beina því til stjórnvalda að vinna með aðilum vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðum að lausn á þeim álitamálum sem kunna að skapast við meðferð og ráðstöfun mótframlags launagreiðanda þegar starfsmenn vinna fram yfir 70 ára aldur. Brýnt er að niðurstaða fáist í þeim álitamálum sem fyrst enda er það liður í að tryggja aukinn sveigjanleika að því er snertir starfslok hjá hinu opinbera.
Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti hv. velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálit meiri hluta rita auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Óli Björn Kárason og Jódís Skúladóttir.
Virðulegi forseti. Að því sögðu tel ég það ekki vera hlutverk okkar, níu þingmanna, auk áheyrnarfulltrúa sem eiga sæti í velferðarnefnd, að leggja til við Alþingi hvernig skuli fara með mótframlag launagreiðanda vegna skyldubundins lífeyrissjóðsiðgjalds þeirra sem eru á vinnumarkaði og eru eldri en 70 ára. Kalli þessi breyting á hámarksaldri heilbrigðisstarfsmanna á lagabreytingu er eðlilegra að slík tillaga komi í framhaldi af samvinnu stjórnvalda við aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðanna um lausn á þeim álitamálum sem uppi kunna að vera. Af þeirri ástæðu var ákveðið að leggja ekki til breytingu á lögum heldur beina skýrum tilmælum til stjórnvalda í greinargerð.
Ég ítreka að þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að bráðabirgðaákvæði taki gildi um næstu áramót ætti sá tími að duga til að finna lausn með hagaðilum um hvernig þetta skuli vera útfært og það til framtíðar. Það styður við áform ríkisstjórnarinnar um að hámarksaldur verði hækkaður í öllum opinberum störfum. Slíkt verður ekki útfært í meðferð þingsins á þessu frumvarpi. Stærra samtal þarf um það og aðkomu aðila vinnumarkaðarins eins og hefð er fyrir í kjarasamningum.