heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Eins og ég hef ítrekað sagt hér í þessum ræðustól þá er þetta útfærsluatriði sem þarf stærra samtal en við getum tekið hér í velferðarnefnd, hvernig við ætlum að vinna þetta einhliða út frá okkur. Þetta er mun stærra samtal. Það þarf að taka á þessu í kjarasamningum og í samþykktum lífeyrissjóða og útfæra þetta þannig. Að sjálfsögðu er ég sammála því að við þurfum að útfæra þetta svo að sómi sé að og ég ætla að ítreka að þetta er útfærsluatriði sem þarf að leysa áður en bráðabirgðaákvæðið tekur gildi næstu áramót.