Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir andsvarið og ítreka: Það eru áform ríkisstjórnarinnar að hækka hámarksaldur í öllum opinberum störfum. Heilbrigðisráðherra ákvað hins vegar að ríða á vaðið því að hann ætlaði ekki að bíða eftir því að allir aðrir myndu gera þetta. Ég vona svo sannarlega að aðrir ráðherrar fylgi þessu fordæmi, grípi tækifærið og fari í slíka vegferð í kjölfarið á þessu frumvarpi.