Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[16:32]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er eiginlega alveg pass. Er hv. þingmaður að segja að það sé sem sagt einn hæstv. ráðherra sem ríður á vaðið og geti búið til þessa mismunun og annað slíkt inni í kerfinu og svo sé svona hipsum happs hvort einhverjir aðrir ráðherrar séu tilbúnir að fylgja honum eftir? Ég hélt að það væri ákveðinn samráðsvettvangur ríkisstjórnarinnar, að þau hittist alla vega tvisvar í viku. Þeim væri ábyggilega í lófa lagið að ræða saman um þetta, að í raun myndi eitt gilda um alla opinbera starfsmenn 70 plús. Ég átta mig eiginlega ekki á svari hv. þingmanns. Ég verð að segja alveg eins og er vegna þess að það var í rauninni bara stórfurðulegt.