Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þegar svörin eru með þeim hætti að þau kannski falla ekki að þeirri vegferð sem hv. þingmaður myndi vilja sjá okkur á, þá er þetta alla vega fyrsta skrefið. Ég vona svo sannarlega að við förum að sjá fleiri slík mál svo að við séum ekki bara með eina stétt undir umfram aðrar. Ég tek svo sannarlega undir það með hv. þingmanni að það er hellingur af fólki, 70 plús, sem myndi óska þess að fá að vinna lengur og við þurfum svo sannarlega að fara í þá átt, ég er hjartanlega sammála því. En hér er eingöngu um að ræða heilbrigðisstarfsmenn og við tökum ekki á öðrum stéttum í þessu bráðabirgðaákvæði sem við erum að tala um.