heilbrigðisstarfsmenn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu framsögu á nefndaráliti. Þetta er í sjálfu sér ágætismál en ég held að þetta sé engin gullkista að sækja í í þeim mönnunarvanda sem við glímum við í heilbrigðiskerfinu. Ég kem nánar inn á það í ræðu minni á eftir. Mér skilst að það séu u.þ.b. 6.000 manns með leyfi frá embætti landlæknis þegar kemur að þessum störfum í heilbrigðisgeiranum. Það eru t.d. rúmlega 3.700 hjúkrunarfræðingar starfandi í dag, þannig að auðvitað er til mikils að vinna að fá þetta fólk til baka til starfa. En það er ekki bara þessi hópur sem við ættum að vera að fókusera á, það ætti líka að fókusera á þá sem hafa horfið frá þessum störfum, eins og t.d. hjúkrunarstarfinu. Það eru fjölmargir menntaðir hjúkrunarfræðingar sem starfa ekki í greininni. Það þarf að reyna að finna einhverjar leiðir til að fá það fólk aftur inn.
En varðandi þetta ákveðna mál þá langaði mig kannski aðeins að spyrja hv. þingmann, af því að ég held að það sé BSRB sem segir í umsögn sinni að það skorti að gerð hafi verið könnun á meðal þessa aldurshóps, um áhuga þessa fólks á því yfir höfuð að vinna lengur. Það segir t.d. hér að Sjúkraliðafélagið lét framkvæma slíka könnun og þar kom fram að mikill meiri hluti, eða rúmlega helmingur, var frekar andvígur og mjög andvígur því að hækka þennan aldur í 75 ár og einungis tæplega 8% voru mjög hlynnt breytingunni. Hefði kannski ekki átt að kanna og rannsaka það betur hvar áhugasvið fólks liggur í þessum efnum. Auðvitað er þetta valkvætt og ég spyr kannski að því í síðara andsvari þegar kemur að launamálum. (Forseti hringir.) En hvað þetta varðar þá spyr ég hvort nefndin hafi yfir höfuð skoðað það að gerð yrði einhver svona víðtæk könnun um þessi málefni?