heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Þessu frumvarpi einu og sér er ekki ætlað að leysa mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu. Mig langar svolítið að varpa því hér fram að það er ómetanlegur auður í því starfsfólki sem eldra er, varðandi t.d. handleiðslu, þjálfun og leiðbeiningar til þeirra sem eru yngri og eru að stíga sín fyrstu skref í störfum í heilbrigðisþjónustunni. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við höfum þetta fólk með, hafi það vilja og getu til. Ég held að þetta sé klárlega eitthvað sem við þurfum að skoða betur. Við höfum verið að ræða mikið hér í þessum sal og í samfélaginu öllu um starfsaðstæður heilbrigðisstarfsfólks. Ég vil bara nýta tækifærið og þakka öllu því góða fólki fyrir sín störf því að þau eru ómetanleg.