Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[16:53]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir framsöguna. Með þessum lögum er verið að bregðast við þörfinni sem blasir við öllum. Það er skortur á heilbrigðisstarfsfólki á Íslandi og við fögnum því að þetta sé komið fram, og þó fyrr hefði verið. En ekki verður við það unað að menn ætli sér að óska eftir því að fólkið með uppsöfnuðu reynsluna, áunna innsæið og getuna til að vera kannski bestu læknar og hjúkrunarfólk sem völ er á skuli þurfa að sæta því að vera á skertum réttindum, þ.e. utan lífeyrissjóðanna. Við höfum séð þetta í þinginu. Það er búið að ræða það og benda á það nokkrum sinnum að hér hefur þingmaður verið starfandi í tvö ár sem hefur verið á 11,5% lægri kjörum en allir aðrir þingmenn fyrir það eitt að vera orðinn sjötugur; og þeim mun fjölga hér og hefur þegar fjölgað. Ekki skulu gilda sérkjör um þingmenn en þetta segir okkur að ef menn eru í standi til að standa í stól eins og þessum og tala og berjast fyrir tiltekna hópa í samfélaginu þá skulu þeir ekki niðurlægðir með því að vera á rúmlega 100.000 kr. lægri kjörum en aðrir þingmenn. Erum við ekki alveg sammála um það?

Ef við þurfum á þeim að halda sem kunna læknisfræði og allt það og ef við erum að biðja þá að koma til okkar tryggjum þá að þeir gangi ekki sneyptir og niðurlægðir að þeim störfum sem er verið að biðja þá um að sinna.