Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:02]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég ætla að lesa hér nefndarálit 2. minni hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2002 (hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna ríkisins). Ég er einn á því minnihlutaáliti.

Ákvæði laga um hámarksaldur opinberra starfsmanna eru að vissu leyti komin til ára sinna. Árið 1970 var meðalævilengd karla 71,6 ár og meðalævilengd kvenna 77,5 ár. Nú er meðalævilengd karla 81 ár og meðalævilengd kvenna 84 ár. Að jafnaði hafa lífslíkur því aukist um átta ár frá árinu 1970. Í greinargerð með frumvarpi þessu er bent á að lífslíkur hafi aukist um tíu ár frá því að reglan um 70 ára hámarksaldur opinberra starfsmanna tók gildi árið 1947. Í frumvarpinu er lögð til undanþága frá 70 ára reglunni sem heimilar heilbrigðisstarfsmönnum að vinna hjá opinberum stofnunum þar til þeir ná 75 ára aldri. Almenningur hefur lengi kallað eftir því að felldar verði úr lögum hinar ýmsu hindranir sem gera eldra fólki erfiðara fyrir að halda áfram að vinna eftir sjötugt. Flokkur fólksins hefur barist fyrir aukinni atvinnuþátttöku eldra fólks og m.a. lagt til afnám skerðingar ellilífeyris vegna atvinnutekna og stutt þingmál sem miða að afnámi ákvæða um hámarksaldur starfsmanna.

Þingmenn hafa reglulega lagt fram frumvörp og þingsályktunartillögur sem miða að því að afnema ákvæði um hámarksaldur opinberra starfsmanna eða hækka viðmiðið. Þau þingmál hafa ekki hlotið framgang. Nú er útlit fyrir að frumvarp heilbrigðisráðherra muni fá fulla þinglega meðferð og því ber að fagna. En vert er að hafa í huga að tilefni þessa frumvarps er sjálfskaparvíti stjórnvalda sem ná ekki að ráða bót á viðvarandi mannekluvanda heilbrigðiskerfisins. Til þess að koma í veg fyrir algjört hrun í opinberri þjónustu neyðist ríkisstjórnin til að viðurkenna þann mikla mannauð sem felst í eldra fólki.

Fagna ber því að hækka eigi hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna en vert er að spyrja hvers vegna breytingin á ekki að gilda um alla opinbera starfsmenn. Ætla mætti að hvergi væru gerðar jafn strangar kröfur um hæfni starfsmanna og gagnvart heilbrigðisstarfsmönnum. Með réttu ætti frumvarp þetta að taka til allra opinberra starfsmanna.

Ekki er hægt að fjalla um frumvarp þetta án þess að nefna lífeyrisréttindi þeirra sem frumvarpið tekur til. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að þegar starfsmaður nær 70 ára aldri falli niður skylda til greiðslu iðgjalds í lífeyrissjóð. Stjórnvöld líta svo á að samhliða falli niður skylda þeirra til greiðslu mótframlags. Heilbrigðisstarfsmaður sem heldur áfram að vinna eftir sjötugt verður fyrir kjaraskerðingu sem því nemur.

Það er með öllu ótækt að fólk verði fyrir kjaraskerðingu sem nemur 11,5% á grundvelli aldurs. Í slíkri tilhögun felst mismunun á grundvelli aldurs. Til er einföld lausn á þessu vandamáli. Á hinum almenna vinnumarkaði tíðkast að gera samkomulag við starfsmenn um að vinnuveitandi greiði samsvarandi hlutfall launa í séreignarsparnað starfsmanns eftir að starfsmaður nær 70 ára aldri. Lögfesta ætti slíkt fyrirkomulag þannig að það gilti bæði um opinbera starfsmenn og starfsmenn á hinum almenna vinnumarkaði. Þar sem frumvarp þetta hefur þegar verið rætt við eina umræðu á Alþingi og breytingartillaga um lögfestingu slíks fyrirkomulags fyrir allt launafólk yfir sjötugt fæli í sér viðamikla breytingu á efni frumvarpsins telur 2. minni hluti, með skírskotun til 44. gr. stjórnarskrárinnar sem kveður á um að lagafrumvörp þurfi að ræða við þrjár umræður, ekki rétt að leggja slíkt fyrirkomulag til í formi breytingartillögu. Þó þykir rétt að ganga strax til verka varðandi þann hóp launafólks sem frumvarpið tekur til. Því styður 2. minni hluti breytingartillögu sem tryggir þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem vinna fram yfir sjötugt rétt til mótframlags frá launagreiðanda sem verði ráðstafað til séreignarsparnaðar.

Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem 1. og 2. minni hluti leggur til.

Við hljótum alltaf að spyrja okkur: Hvers vegna í ósköpunum er ríkisstjórnin að leggja fram svona frumvarp þegar hún hefði svo auðveldlega getað komist hjá því að mismuna? Nú þegar eru verkföll og þau stafa eingöngu af því að það er verið að rífast um það, og það er ekki vilji til þess, að fólk sem vinnur sömu vinnu hlið við hlið fái sömu laun. Þetta getur ekki verið flókið. Þetta er það einfaldasta af öllu, að við greiðum sömu laun fyrir sömu vinnu. Samt virðist það vera innbyggt í ríkisstjórn eftir ríkisstjórn að haga hlutunum þannig að fólk sé tilbúið til að brjóta lög sem banna mismunun. Við sjáum þetta í kerfinu. Við sjáum þetta langbest í almannatryggingakerfinu þar sem þvílík brot eru á jafnaðarreglu, á því að allir séu jafnir. Það sem ég tel vera eitt stórfurðulegasta og fáránlegasta lögbrot allra tíma er að hægt sé að taka ákveðinn hóp og setja það í lög að hann fái 10% minna en lægsta lífeyri. Ég skil ekki svona og þess vegna þarf maður ekkert að vera hissa á þessari lagasetningu.

Hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttir sagði í andsvörum að þetta væri frá heilbrigðisráðherra og þetta væri fyrsta skrefið í þessa átt og síðan gætu aðrir ráðherrar gert það sama. Ég ætla bara að vona að þeir geri ekki það sama, það væri alveg skelfilegt; ef þeir ætla svo að halda áfram að hafa nákvæmlega sömu niðurstöðu og hér er. Þetta er bara mismunun. Og að setja það inn í lög að taka eigi tillit til þess, hafa það sem afsökun, við vitum að það er ekki nóg, við vitum alveg að það gagnast ekkert. Við eigum bara að setja það inn í lögin strax að við hættum að mismuna fólki.

Oft getur slæm vísa verið of oft kveðin en góð breytingartillaga verður aldrei nógu oft lesin upp. Þess vegna ætla ég að lesa aftur upp breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 (hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna ríkisins) sem við stöndum þrjú að. Á henni eru auk mín Halldóra Mogensen og Oddný G. Harðardóttir en hún hljómar svo:

„Við 1. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Heilbrigðisstarfsmaður sem ráðinn er samkvæmt ákvæði þessu skal eiga sama rétt á mótframlagi launagreiðanda í lífeyrissjóð og kveðið er á um í þeim kjarasamningi sem hann starfar eftir. Hafi launamaður gert samning um viðbótartryggingavernd, sbr. 8.–10. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, skal honum heimilt að ráðstafa iðgjaldi samkvæmt ákvæði þessu til öflunar lífeyrisréttinda í séreign.“

Nú getur ríkisstjórnin sýnt frumkvæði og jafnvel leyst úr þessum vanda og bara samþykkt þetta. Þá erum við búin að búa til fordæmi og þá er málið bara leyst. Ef þeir starfsmenn sem treysta sér — við vitum ekki hve margir þeir eru, og í guðanna bænum ekki fara að gera einhverja skoðanakönnun á því, það er engin þörf á því, við getum bara sagt: Þeir sem treysta sér og vilja vinna, þeir vinna. Þeir sem treysta sér ekki til að vinna, þeir fara bara á eftirlaun. En þeir sem treysta sér til að vinna og ætla að vinna sömu vinnu og þeir sem eru að vinna við hliðina á þeim eiga að fá sömu laun og sömu réttindi óskert. Þetta er einföld og sjálfsögð krafa. Þess vegna segi ég: Ef þessi breytingartillaga verður samþykkt þá erum við búin að leysa málið. Ég vona heitt og innilega að ríkisstjórnin sjái sóma sinn í því að sópa þessu máli ekki undir teppið heldur bara leysa það.