Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[17:12]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Ég ætla nú bara að koma stuttlega inn í þessa umræðu og þakka fyrir hana og þetta frumvarp. Ég fagna því að það hilli undir að ákveðinn hópur fólks fái að vinna lengur en til sjötugs hjá hinu opinbera. Vonandi verður þetta fyrsta skrefið í því að það verði algild regla meðal opinberra starfsmanna. Ég hef verið talsmaður þess og fylgjandi því að við séum ekki að setja einhvern ákveðinn aldur á það hvenær fólk þarf að hætta að vinna, að það megi einfaldlega vinna eins lengi og það hefur heilsu, vilja og getu til. Ég held að það sé bara skynsamlegt fyrir samfélagið allt. Ef maður horfir til kannana sem gerðar hafa verið á meðal eldra fólks hefur það einmitt komið fram með afgerandi hætti að fólki verði gert kleift að vinna lengur hafi það vilja og getu til. Ég held að það sé alveg öruggt mál að hér er verið að tala inn í þær skoðanir meðal þeirra sem eru orðnir 70 ára. Hv. þm. Jakob Frímann Magnússon sagði að hugsanlega væri þarna um að ræða okkar allra besta og reyndasta starfsfólk sem við gætum verið að kalla til baka inn í heilbrigðiskerfið, og það er mikið fagnaðarefni.

Miðað við þær tölur sem ég hef frá Félagi hjúkrunarfræðinga skilst mér að það séu 6.000 manns með leyfi frá embætti landlæknis þegar kemur að því að starfa við hjúkrun. Það eru þá allir sem eru á lífi, óháð heilsu og getu o.s.frv. En um 3.700 hjúkrunarfræðingar eru starfandi, það eru tölur frá árinu 2022. Við sjáum því að þarna úti er heilmikið af faglærðu fólki í heilbrigðisgeiranum sem er ekki að starfa í þeirri mikilvægu grein sem heilbrigðismálin eru. Þar þurfum við að taka okkur á að mínu mati og þetta er einn liður í því. En það er hægt að fara fleiri leiðir og ég veit að Félag hjúkrunarfræðinga hefur bent á að það sé mjög mikilvægt að bæta starfsumhverfi í þessum geira. Margir þurfa að vinna undir miklu álagi og langar vaktir, það er mikið álag á bráðamóttökunni o.s.frv. Þetta er kannski starfsumhverfi sem er ekki nógu aðlaðandi. Og það hlýtur að vera hluti af því að leysa mönnunarvandann að bæta starfsumhverfið. Þó að þetta frumvarp taki ekki á því þá er nauðsynlegt að huga að því. Mér finnst að það ættu að vera næstu skref hvað þetta varðar.

En svo má líka segja — og ég veit það, ég hef spjallað við formann hjúkrunarfræðinga um það — að það eitt og sér að fá fólk sem er orðið sjötugt inn í þessi störf sé svo sem engin gullkista sem menn geti sótt í. Þetta er náttúrlega valkvætt og það er kannski ekki nógu skýrt, finnst mér, hversu margir hafa í raun og veru áhuga á því að vinna lengur í heilbrigðisgeiranum. Eins og kemur fram í umsögn BSRB, sem ég nefndi í andsvari áðan, lét Sjúkraliðafélag Íslands nýlega gera könnun meðal félagsmanna sinna og þar kom fram að rúmlega helmingur sjúkraliða væri frekar eða mjög andvígur því að hækka hámarksaldur í 75 ár. Einungis tæp 8% voru mjög hlynnt breytingunni. Svo segir í framhaldi í umsögn BSRB hvað þetta varðar:

„Í þessu sambandi þarf að hafa í huga að þau störf sem um ræðir eru mörg hver slítandi störf þar sem mikið mæðir á starfsfólkinu alla daga og undanfarin ár hafa verið gífurlega erfið fyrir þennan sama hóp.“ — Það getum við öll tekið undir og sérstaklega á það við um veirufaraldurinn. — „Það er því augljóst að hér er ekki um einhvers konar töfralausn að ræða.“

Ég tek alveg undir það að þetta er engin töfralausn. En þetta er hins vegar gott mál og sérstaklega vegna þess, og það er einn meginparturinn í þessu máli, að lagt er upp með að fólk haldi sömu launum og þegar það hvarf frá störfum sökum aldurs. Það er mjög mikilvægt. Í veirufaraldrinum, þegar við vorum að kalla bakvarðasveitina til, sem skipti okkur verulega miklu máli, og vorum að fá þennan aldurshóp inn í heilbrigðisgeirann aftur, þá voru kjörin þau sömu fyrir alla. Það var bara tímavinna og ég held að það sé ekki það sem þarf til að ná þessum markmiðum. Það er bara eðlilegt að ef þú hefur verið í einhverju starfi og þú lætur af störfum og ert síðan kallaður aftur til starfa, eða þú átt kost á því að koma aftur inn í starfið, að þú haldir sömu launum og þú hafðir. Það er mikilvægur hluti í þessu máli sem ég fagna.

Það er líka nokkuð augljóst að við erum ekki að fara að setja þennan hóp, þessa starfskrafta sem eru komnir yfir sjötugt, í framlínuna. Og svo aftur: Ef þetta verður að veruleika þá verður að bjóða þessum aðilum starfsumhverfi við hæfi. Við sjáum heldur ekki að þessi hópur fari að manna bráðamóttökuna, ég held að það sé alveg augljóst, undir því gríðarlega álagi sem er þar. Við verðum að átta okkur á því að þessi hópur, þessir einstaklingar, er að koma inn í sínum frítíma og allir voru á einhverjum meðallaunum þegar þeir voru kallaðir inn í Covid. Þetta frumvarp breytir þessu og lagt er upp með að halda sömu launum, eins og ég sagði.

Í umsögnum BSRB og BHM er þó nefnt að lífeyrissjóðsmálin þurfi að vera betur fram sett og ekki megi ganga þannig fram að þessir starfskraftar séu ódýrari vegna þess að þeir fái ekki lífeyrissjóðsframlagið — þegar viðkomandi er orðinn sjötugur þá fellur það niður — en áfram sé hægt að fá séreignarsparnaðinn. Það þarf að finna lausn á því máli og ég vísa bara til hv. þm. Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur, sem er framsögumaður, hvað það varðar að horft verði til þess. Það er mjög mikilvægt. Viðkomandi aðilar þurfa alla vega, það er mín skoðun, að halda sömu launum eða fá betri kjör. Þetta skiptir allt máli til að við fáum fleiri inn í þessi störf. Þetta er liður í því, þetta er ekki eina lausnin og hún er ekki töfralausn eins og ég nefndi hér áðan. Vonandi verður þetta bara skref í þá átt að við munum sjá að fólk sem er orðið sjötugt og vill halda áfram og hefur getu til að vinna áfram fái að gera það.

Með þessu frumvarpi gefst heilbrigðisstarfsfólki sem náð hefur 70 ára aldri tækifæri til að starfa áfram og ég fagna því. Ef ég fer aðeins nánar yfir það sem kemur fram í umsögn BSRB þá er það svo sem ekki nýmæli að svona frumvörp hafi verið lögð fram þegar kemur að 70 ára aldurstakmörkunum. En þetta er nýtt að því leyti til að þetta snýr að heilbrigðisstarfsfólki og er liður í þeim mönnunarvanda sem við erum að glíma við. Flestallar þjóðir eru að glíma við mönnunarvanda í heilbrigðisgeiranum. Við höfum verið að reyna að finna lausn á því að geta kallað til erlenda sérfræðinga og erlent starfsfólk til að hlaupa undir bagga með okkur. En svo, eins og ég sagði áðan, þá eru bara fjölmargir sem hafa þessa menntun, hafa t.d. menntun sem hjúkrunarfræðingar, en starfa í allt öðrum geira. Ég veit t.d. um fjölmarga hjúkrunarfræðinga sem starfa sem flugfreyjur. Það hljóta að vera ástæður fyrir því og það eru væntanlega launakjörin og vinnuálagið sem spila þar inn í. Við þurfum að finna lausnir hvað það varðar. Það á að vera aðlaðandi að koma og starfa í heilbrigðisgeiranum. Auðvitað eru þetta mjög gefandi störf. Hjúkrunarstarfið er mjög gefandi starf. Það er þá hlutverk hins opinbera að sjá til þess að það umhverfi sem starfsfólkið starfar í — þeir sem reka þessa þjónustu þurfa að gera það með sómasamlegum hætti — sé þannig að það sé tilhlökkun og eftirsóknarvert að sinna þessum störfum.

Ef ég lít aðeins nánar á umsögn BSRB þá koma þeir svolítið inn á þetta með lífeyrissjóðina, að það þurfi að finna lausn á því og ég hef fulla trú á að það verði gert. Hér kemur t.d. fram hjá BSRB að þeir séu ekki á móti því að hækka hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna ríkisins í 75 ár en það skipti mestu máli hvernig sú breyting yrði framkvæmd. Ég tek heils hugar undir það að framkvæmdin er mjög mikilvæg. Það er mikilvægt að vel sé staðið að þessu og sérstaklega hvað varðar þau réttindi sem starfsfólkið býr við eftir 70 ára aldur, bæði innan ráðningarsambandsins og einnig þegar kemur að lífeyrisréttindunum. Þetta þarf allt að liggja fyrir og hefði kannski mátt ávarpa þetta með betri hætti í frumvarpinu. En framsögumaður, hv. þm. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, fór ágætlega yfir þetta áðan og ég held að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu máli. En við þurfum hins vegar að huga að þessum lífeyrisréttindum og það kemur einnig fram í umsögn BHM. Það er svona meginniðurstaða umsagnaraðila, BHM og BSRB, að það þurfi að passa upp á lífeyrissjóðsmálin en bæði þessi félög eru alls ekki á móti þessari breytingu. En í umsögn BSRB er varað við of mikilli bjartsýni um það að hve miklu leyti þessi breyting muni hafa áhrif á mönnun heilbrigðiskerfisins. Mönnunarvandinn er ærinn fyrir og mun fyrirsjáanlega aukast þrátt fyrir þetta frumvarp. Þau leggja áherslu á að það sé mjög mikilvægt að fara í markvissar aðgerðir til að bæta starfsumhverfið, fjölga möguleikum til náms og starfsþjálfunar. Ég tek heils hugar undir að það er margt fleira sem þarf að gera en þetta. En þetta er hins vegar mjög gott mál að því leyti til að þarna erum við að fá mjög hæft og reynslumikið starfsfólk aftur inn í heilbrigðisgeirann sem vill og hefur getu til að starfa lengur. Það er náttúrlega lykillinn að þessu öllu saman og þá verðum við bara að passa upp á framkvæmdina, að hún sé í góðu lagi, og launakjörin. Það er verið að gera með þessu frumvarpi, það er verið að leggja áherslu á það að þessir starfsmenn haldi þeim kjörum sem þeir höfðu, hafi sömu laun og þegar þeir voru starfandi í heilbrigðisgeiranum.

Ég fagna þessu frumvarpi, frú forseti, og vona að það verði að lögum á næstu dögum. Ég vona að við eigum eftir að sjá öfluga og reynslumikla einstaklinga sem ekki eru starfandi í heilbrigðisgeiranum í dag koma inn á þennan mikilvæga starfsvettvang.