heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, og þá sérstaklega hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna. Mig langaði aðeins að taka þátt í þessari umræðu. Mér finnst oft á tíðum að við stjórnmálamenn séum í einhverjum viðbrögðum við stöðu sem er komin upp, stöðu sem við hefðum kannski helst viljað vera án, í stað þess að vera að skapa einhverja umgjörð og kerfi sem geta haldið utan um það sem við viljum að sé til staðar í samfélagi okkar. Ég upplifi það að við séum akkúrat núna, í þessu máli, að gera það; við erum að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er og oft hefur verið nefnd hér í ræðustól Alþingis sem mönnunarvandi.
Við erum kannski ekkert endilega að velta fyrir okkur hvernig á því stendur að þessi mönnunarvandi sé kominn upp, hvað hafi orðið þess valdandi að við erum sýknt og heilagt að glíma við mönnunarvanda inni á heilbrigðisstofnunum. Er það vegna þess að við erum ekki með nógu mikið af hæfu fólki? Er það vegna þess að aðbúnaður og aðstaða er ekki í lagi? Er það vegna þess að launin eru of lág? Ég held að þessi staða sé til komin vegna þess að allir þessir hlutir eru ekki eins og þeir gætu best verið og við því þurfi að bregðast. En ég er ekki viss um að það sem hér er verið að leggja til geri mikið til að laga þann vanda sem heilbrigðiskerfið á við að etja. Ég er ekkert viss um að fólk sem hefur kannski unnið 40 til 50 ár við erfiðar aðstæður á lágum launum og við aðstæður þar sem skortur hefur verið á starfsfólki, fólk sem hefur þurft að leggja meira á sig en eðlilegt getur talist, hafi einhvern áhuga eða hreinlega getu til að halda áfram að vinna eftir að það verður sjötugt.
En gott og vel. Það er búið að ákveða að grípa til þessara aðgerða. Þá spyr maður: Er staðið að þessu með þeim hætti að allir geti verið sáttir og með þeim hætti að þeir sem eru komnir yfir sjötugt hafi sérstakan áhuga á að halda áfram að vinna, að í þessu sé einhver gulrót sem geri það að verkum að þeir hafi hreinlega áhuga á því að halda áfram að vinna? Mér er það til efs, eftir að hafa skoðað þetta, að í þessu felist einhver sérstakur hvati fyrir fólk til að halda áfram að vinna eftir að sjötugsaldri er náð. Ég benti á það í 1. umr., þegar málið var lagt fram — ég held það hafi verið 25. apríl — að þarna væri verið að að fá fólk til vinnu án þess að greiða því samningsbundið mótframlag í lífeyrissjóð. Ég fékk þá spurningu frá hæstv. ráðherra hvort ég væri þá bara á móti þessu. Ég svaraði því þannig: Nei, ég er ekkert á móti þessu en ég held að það sé eðlilegt að við gefum fólki, sem ætlar að taka að sér að hjálpa til við að leysa þann vonda og erfiða mönnunarvanda sem hefur orðið til í kerfinu okkar, einhverja gulrót sem gæti gert það að verkum að fólk hafi vilja til að halda áfram. Ég fæ ég ekki séð að þannig sé það í þessu frumvarpi.
Mig langar aðeins að fara ofan í þær umsagnir sem hafa borist af því að þær eru í raun og veru alveg samhljóða því sem mér fannst ég þurfa að benda á við 1. umr., þ.e. að það skorti upp á það að fólk sitji við sama borð eftir að það hefur náð 70 ára aldri. Þá langar mig kannski að nefna — af því að við höfum heyrt í fréttum dagsins í dag um skerðingu á lífeyrisréttindum — að LSR er að skoða það að skerða lífeyrisréttindi um 4%, sýnist mér, hjá fólki sem nú þegar hefur hafið lífeyristöku en um 10% hjá hinum. Í því samhengi veltir maður fyrir sér: Er einhver hvati til að halda áfram að vinna þegar bæði er búið að skerða lífeyrisréttindi en svo getur fólk ekki reynt að endurvinna þau aftur? Mér finnst einhvern veginn eins og verið sé að slá tvisvar sinnum á sama fingur í þessu.
Ég hefði viljað sjá að við værum búin að skrifa inn í þetta frumvarp að við ætluðum að tryggja fólki mótframlag, hvernig sem við gerum það. Ég styð breytingartillöguna sem er fram komin um að það verði skýrt að fólk hafi val um að fá að greiða í séreign. Það á ekki að vera neinum vandkvæðum bundið. Því er haldið fram að það gangi ekki að setja það inn í þetta en við erum endalaust að samþykkja einhverja bandorma hér í þinginu þar sem verið er að hrúga mörgum málum í eitt mál. Við ættum því alveg að geta, í þessu máli eins og mörgum öðrum, búið til einhvers konar bandorm sem tæki á öllum hliðum þessa máls. Ég sé ekki að það ætti að vera eitthvert sérstakt vandamál fyrir þingið að leysa úr því.
Þegar maður skoðar þær umsagnir sem hafa komið fram þá eru þær nánast á einu máli um að það vanti upp á að framlag í lífeyrissjóð sé tryggt. Mig langar bara að minna á að lögin um lífeyrissjóði kveða á um skylduna til að greiða í lífeyrissjóð. Það er ekki hægt að leggja þá skyldu á 70 ára gamlan einstakling, einstakling sem er eldri en 70 ára, að borga í lífeyrissjóð en það er ekkert sem bannar honum það. Það er ekkert í lögunum sem bannar honum að borga í lífeyrissjóð. Ég hef alltaf litið þannig á að greiðsla í lífeyrissjóð sé afleiðing af því að fólk er að vinna. Það er einhvers konar afleiða þess að fólk skili vinnuframlagi. Það er hluti af launakjörum fólks að um leið og það vinnur einn tíma og fær fyrir það 100% laun þá ávinni það sér rétt til þess að vinnuveitandi greiði á móti lífeyrissjóðsgreiðslu. Hann borgar reyndar miklu fleira, hann borgar tryggingagjald, sem er hluti af launakjörum fólks, og það fer m.a. í að greiða fyrir atvinnuleysistryggingar eða Fæðingarorlofssjóð eða annað, það eru þessi svokölluðu launatengd gjöld sem fylgja vinnunni. Lífeyrissjóðir eru einn þáttur í þessum launatengdu gjöldum og mér finnst algjörlega fáránlegt að hægt sé að ákveða það að þegar viðkomandi er orðinn 70 plús þá sé þetta fellt niður. Við höfum séð það gerast hér á hinu háa Alþingi að þingmenn sem hafa náð 70 ára aldri fá ekki mótframlag og eru þess vegna ekki á sömu launum og við hin, sem mér finnst bara vera mikið óréttlæti og get engan veginn stutt.
Það er alveg skýrt í umsögn frá Bandalagi háskólamanna að þeir geta ekki undir neinum kringumstæðum samþykkt að ekki sé verið að greiða mótframlag í lífeyrissjóð. Það hefur verið lesið upp úr þessari umsögn hér að þeir geri skýlausa kröfu um að greitt sé í lífeyrissjóð, og ég tek bara heils hugar undir það. Læknafélagið skilaði líka umsögn og það vakti athygli mína þar að hæstv. heilbrigðisráðherra nefndi í ræðu hér við fyrri umræðu að væntanlega væri verið að bæta kjör þeirra sem eru að vinna til sjötugs af því að þeir hefðu allir verið á verktakasamningum sem væru að vinna eftir sjötugt. En í umsögn Læknafélagsins kemur þetta m.a. fram, með leyfi forseta:
„Eftir því sem LÍ veit best gerir Landspítalinn sjaldan ef nokkurn tímann verktakasamninga við lækna yfir sjötugu. Bæði Landspítalinn og heilsugæslustöðvar hafa hins vegar boðið læknum sem stofnanirnar vilja að vinni áfram eftir sjötugt svokallaða tímavinnusamninga.“
Ég veit ekki hvað felst í þessum tímavinnusamningum sem verið er að bjóða læknum en maður hefði haldið, miðað við vinnumarkaðinn, að þeir ættu að fela í sér allt það sem aðrir samningar fela í sér. Fólk á almennum vinnumarkaði — það á ekki að breyta neinu hvort það er á föstum mánaðarlaunum eða með óreglubundinn vinnutíma og fái tímavinnu greidda, þá fær það bara framlag sem hlutfall af þeim tíma sem það skilar. Ég er ekki alveg að ná utan um þetta. Hafa heilbrigðisstofnanir verið að borga fyrir einhverja tímavinnusamninga og greiða þá verri kjör af því að fólk er orðið sjötugt? Og maður heyrir sýknt og heilagt að það sé bannað að mismuna eftir aldri. Þetta er eitthvað sem ég vildi vekja athygli á og finnst eðlilegt að sé skoðað.
BSRB hefur líka gert athugasemdir við það með hvaða hætti er verið að gera þetta og telur eðlilegt að samhliða þessari breytingu sé tryggt að framlag komi í lífeyrissjóði. Mér finnst bara eðlilegt, þegar við erum að gera svona hluti, eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar, að við séum ekki alltaf að bregðast við, að við skoðum þetta heildstætt. Er fólk eftir 70 ára aldur tilbúið til að halda áfram á vinnumarkaði? Ég held að við séum tilbúin til þess vegna þess að í flestum tilfellum líður okkur betur í dag en verkafólki fortíðarinnar sem var útslitið; margar stéttir eru kannski útslitnar og geta hreinlega ekki unnið eftir sjötugt. Við eigum að auka möguleika fólks til að vinna lengur en við verðum að gera það þannig að við séum ekki að rýra réttindi fólks. Það hlýtur að vera frumkrafa okkar hér á hinu háa Alþingi.