heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir umræðuna sem hér hefur farið fram í dag. Ég get tekið heils hugar undir það sem komið hefur fram. Þetta mál hefur fengið afar góða umfjöllun í velferðarnefnd þar sem ég sit og þeir félagar mínir sem hér hafa tekið til máls hafa flestir setið í nefndinni. Þetta mál hefur verið þar til umræðu í töluvert langan tíma og hefur fengið mjög góða umræðu, enda mjög mikilvægt. Ég get bara tekið undir allt það sem hér hefur komið fram. Það er auðvitað þannig að í fullkomnum heimi hefði auðvitað átt að gera ráð fyrir því að kjörin er varða lífeyrissjóðinn og önnur kjör hefðu fylgst að. Þetta var helsta málið sem við ræddum í nefndinni og mér finnst eins og við séum að reyna að búa til einhvern ágreining um þetta. Það er enginn ágreiningur um það að heilbrigðisstarfsfólk sem ætlar að vinna samkvæmt þeim lögum sem hér er meiningin að samþykkja fái eðlilega greitt fyrir sína þjónustu. Á almennum vinnumarkaði, þar sem starfsmenn halda áfram eftir sjötugt, hafa þeir gert samning um að greiða í séreignarsjóð eða fá það greitt sem laun, þessi 11,5% sem eru framlag atvinnurekandans, og ég hef ekki heyrt nokkurn einasta mann láta sér detta það í hug að ríkið ætli ekki að gera það.
Það er bagalegt, og ég tek undir það sem hv. þm. Guðbrandur Einarsson sagði hér áðan, að þetta fylgist ekki að, ég er algerlega sammála því. En ég hef verið þeirrar skoðunar, eins og félagar mínir í meiri hlutanum, og það hefur komið fram í þessari umræðu, að þau málefni sem snúa beint að vinnumarkaðnum — það eru kannski fleiri aðilar en bara heilbrigðisstarfsmenn sem við myndum vilja að fengju sams konar réttindi skráð. Það hefur komið fram fyrir nefndinni að þó að hætt sé að greiða í lífeyrissjóð við 70 ára aldur þá er ekkert sem bannar það. Það hefur margoft komið fram og við þekkjum það, og fulltrúar lífeyrissjóðanna sögðu okkur það, að það er ekki bannað. Hér hefur það dæmi verið nefnt, virðulegur forseti, að þingmenn sem hafa náð þessum aldri njóti ekki þess sama og starfsmenn á almennum vinnumarkaði og mér finnst það bara mjög lítillækkandi fyrir þessa stofnun að það skuli ekki hafa verið gert. Mér finnst það bara mjög lítillækkandi vegna þess að þrátt fyrir allt þá eiga þingmenn líka rétt. Það er mjög mikilvægt að þingið vindi bráðan bug að því og sýni það fordæmi inn í kerfið að við metum störf þeirra sem eru 70 ára og eldri á sama hátt og annarra. Það hefur líka komið fram í ræðum hv. þm. Guðbrands Einarssonar, hann sagði það hér áðan, að það væri bannað að mismuna fólki eftir aldri. Hverjum dettur það í hug? Það er þessi ágreiningur um hvort hægt sé að afgreiða þetta vinnumarkaðsmál með þessum lögum. Við höfum álitið, miðað við þær upplýsingar sem við höfum fengið, að það sé ekki hægt, að það sé ekki rétt. Þess vegna finnst mér sú ábending sem þingmenn hafa komið með hér, að það sé á valdi annars ráðherra en heilbrigðisráðherra að semja um kaup og kjör, sem er þá væntanlega fjármálaráðherra — það er mjög mikilvægt að fjármálaráðherra og ráðuneyti hans ljúki þeim verkefnum á þessu ári sem gert er ráð fyrir í þessu nefndaráliti og þeim lögum sem við ætlum að fara að setja.
Ég hef ekki lagt það í vana minn, virðulegur forseti, að tefja fundi með löngum ræðum og ætla ekki að bregða út af þeim vana mínum. En ég vil taka undir að þessar ráðstafanir sem er verið að gera hér, að fá heilbrigðisstarfsfólk til að vinna eftir sjötugt, eru auðvitað til komnar vegna þess að það skortir mikið á að við höfum nógu marga heilbrigðisstarfsmenn. Það er mikið álag og við eigum þeim miklar þakkir að gjalda sem hafa staðið fremstir í flokki og það hafa heilbrigðisstarfsmenn gert í þeim hörmungum sem hafa riðið yfir þjóðina og heiminn á undanförnum árum. Þeir vinna við erfið skilyrði og það er mikið álag. Það hefur komið fram hjá þingmönnum, og ég tek heils hugar undir það, hvað varðar vinnuaðstæður og vinnutíma og laun og allt þetta, að þetta spilar allt saman. Ég er sannfærður um að við munum reyna að gera okkar besta til að bæta úr því. Við viljum líka nýta hæfileika þeirra sem eru orðnir 70 ára og þar fer eðlilega oft reyndasta fólkið, oft með gríðarlega þekkingu. Það er auðvitað bara sóun á hæfileikum þegar fólk er að hætta að vinna mjög snemma, það er mikil sóun. En auðvitað eru það líka lífsgæði fyrir þá sem geta hætt að vinna snemma og kjósa að gera það. Ég held að samfélagið kalli ekki bara á heilbrigðisstarfsfólk heldur aðra í samfélaginu til að vinna lengur. Við sjáum að það vantar fólk víða. Þá vil ég líka minna á það í leiðinni að það er töluvert af fötluðu fólki sem getur sinnt ýmiss konar störfum og við eigum að bera þá virðingu fyrir þeim að þau geti líka mætti út á vinnumarkaðinn til að sjá sér og sínum farborða. Ég vona að þessu máli verði lokið fyrir þinglok og öllum þeim ábendingum, um kaup og kjör, lífeyrissjóðsgreiðslur og slíkt, sem hér hafa komið fram, verði lokið á þessu ári, og fólk fái það eðlilega endurgreitt til baka. Þeir sem stunda verktakavinnu og eru að vinna eftir sjötugt hljóta að ganga frá kjörum sínum þannig að þeir fái það greitt sem þeir eiga að fá fyrir vinnuna.
Virðulegur forseti. Ég hef lokið máli mínu.