skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar o.fl.). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem leiðir af innleiðingu meginhluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/879 frá 20. maí 2019, svonefnd BRRDII-tilskipun.
Þá eru lagðar til aðrar breytingar á sömu lögum og lögum um fjármálafyrirtæki sem reynsla af framkvæmd laganna þykir kalla á.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti. Nefndarálit liggur frammi.
Í umsögn Seðlabanka Íslands kemur fram að bankinn telji nauðsynlegt að gera breytingu á 6. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja svo að skýrt sé að tiltekin ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gildi ekki um málsmeðferð og ákvörðun fjármálaeftirlitsins um hvort fyrirtæki sé á fallandi fæti skv. 34. gr. laganna, m.a. í ljósi mikilvægis þess að hægt sé að grípa til aðgerða með skjótvirkum hætti.
Meiri hlutinn bendir á, líkt og fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins, að í IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga eru fáar og almennt orðaðar meginreglur sem mæla fyrir um lágmarkskröfur sem almennt hefur verið talið að stuðli að vandaðri stjórnsýslu og ákvarðanatöku. Almennt sé viðurkennt að eðli ákvarðana, aðdragandi og nauðsyn á hraðri og öruggri afgreiðslu hafi áhrif á þessa þætti og að málsmeðferðarreglur laganna eigi ekki að koma í veg fyrir áhrifaríka og skilvirka stjórnsýslu.
Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem rakin eru í minnisblaðinu og bendir á að með setningu stjórnsýslulaga voru lögfestar í fyrsta skipti almennar lágmarksreglur um málsmeðferð allra stjórnvalda við undirbúning og töku stjórnvaldsákvarðana og um réttarvernd aðila máls í því tilliti. Meiri hlutinn áréttar að viðamiklar ástæður þurfi að vera fyrir hendi svo að vikið verði frá lágmarksreglum stjórnsýslulaga með sérlögum.
Um ábendingu Seðlabanka Íslands, sem varðar framsetningu markmiðsákvæðis laganna, vísar meiri hlutinn til minnisblaðs ráðuneytisins um málið.
Í umsögn Seðlabanka Íslands kemur fram að óheppilegt sé að í lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sé Seðlabankanum falið að setja reglur til að innleiða tæknistaðla Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) sem gerir kröfur til skilavaldsins sjálfs enda sé honum ætlað að uppfylla skyldur samkvæmt sömu tæknistöðlum. Nánar tiltekið er um að ræða reglur sem Seðlabankanum er falið að setja á grundvelli 4. mgr. 25. gr., 8. mgr. 30. gr., 5. mgr. 31. gr. og 4. mgr. 32. gr. laganna.
Meiri hlutinn leggur til að ákvæðinu verði breytt þannig að ráðherra verði falið að setja reglugerð á grundvelli umræddra ákvæða. Auk þess leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndaráliti.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.