rekstraraðilar sérhæfðra sjóða o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri o.fl.). Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ákvæði sem innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 um að auðvelda dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB að því er varðar dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri.
Einnig er lagt til að hámark á stjórnvaldssektir einstaklinga samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, verði hækkað úr 65 millj. kr. í 800 millj. kr. til samræmis við það sem kveðið er á um í annarri löggjöf á fjármálamarkaði. Samhljóða breyting er lögð til á lögum um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, nr. 31/2022.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti og nefndarálit liggur frammi.
Í umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja er vakin athygli á því að enn gæti ósamræmis á milli tiltekinna ákvæða í lögum um verðbréfasjóði og X. kafla laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Nánar tiltekið bentu samtökin á að 94. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, um takmarkanir á eignasafni, og 72. gr. laga um verðbréfasjóði væru efnislega samhljóða utan þess að í síðarnefnda ákvæðinu væri kveðið á um heimild tiltekinna undanþága sem ekki væru í 94. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið telji mikilvægt að samræma ákvæðin þannig að kveðið verði á um sömu undanþágur og eru í 2. og 3. mgr. 72. gr. laga um verðbréfasjóði í 94. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og möguleika Seðlabanka Íslands til að kveða á um í reglum að 1. mgr. ákvæðisins nái ekki til framseljanlegra fjármálagerninga sem traustir aðilar gefa út eða ábyrgjast.
Meiri hlutinn tekur undir framangreint og gerir breytingartillögu í minnisblaði ráðuneytisins að sinni. Þá er lögð til breyting á 3. gr. 72. gr. laga um verðbréfasjóði þess efnis að vísað verði til Seðlabanka Íslands í stað fjármálaeftirlitsins til að gæta lagasamræmis. Auk framangreinds er í umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja bent á að ákvæði 3. mgr. 76. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða byggist á 3. mgr. 25. gr. brottfallinna laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011, en við endurskoðun þeirra hafi verið ákveðið að fella ákvæðið brott. Ákvæðið kveður á um að ef hlutdeildarskírteini er skráð á safnreikning skuli viðkomandi fjármálafyrirtæki veita rekstrarfélagi upplýsingar um nöfn og kennitölur raunverulegra eigenda, nafnverð skírteina og kaupdag þeirra eigi sjaldnar en mánaðarlega og hvenær sem rekstrarfélag óskar þess. Um er að ræða séríslenskt ákvæði og benda samtökin á að við setningu laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, virðist hafa farist fyrir að endurskoða 76. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða til samræmis við 41. gr. nýrra laga um verðbréfasjóði og þar með fella framangreint ákvæði á brott.
Í minnisblaði ráðuneytisins er tekið undir ábendingu Samtaka fyrirtækja á fjármálamarkaði (SFF) um að rétt sé að fella brott 3. mgr. 76. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða enda verði talið að ákvæði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, tryggi það sem ætlað var að tryggja í ákvæði eldri laga um verðbréfasjóði. Meiri hlutinn tekur undir þessa ábendingu og gerir breytingartillögu í minnisblaði ráðuneytisins að sinni.
Skilyrði fyrir heimild rekstraraðila með staðfestu utan Íslands til markaðssetningar sérhæfð sjóðs hér á landi:
Í minnisblaði ráðuneytisins um málið kemur fram að ráðuneytinu hafi borist ábending frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands varðandi 2. tölulið 2. mgr. 64. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Ákvæðið kveður á um skilyrði fyrir heimild rekstraraðila með staðfestu utan Íslands til markaðssetningar sérhæfð sjóðs hér á landi sé að hann afhendi öll gögn sem gert er ráð fyrir í V. kafla laganna, þar á meðal gögn skv. 3. mgr. 48. gr., sem eru listi yfir alla sjóði sem rekstraraðili rekur og ársreikningur fyrir hvert fjárhagsár. Ákvæðið er innleiðing á 42. gr. AIFMD-tilskipunarinnar um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Þá er bent á að í tilskipuninni sé gert ráð fyrir því að afhenda skuli umrædd gögn samkvæmt beiðni lögbærs yfirvalds. Orðalag 2. töluliðar 2. mgr. 64. gr. laganna gangi því lengra en tilskipunin gerir ráð fyrir. Með því að breyta orðalaginu til samræmis megi draga úr óþarfa gagnaskilum til fjármálaeftirlitsins.
Meiri hlutinn gerir tillögu ráðuneytisins að breytingu á 2. tölulið 2. mgr. 64. gr. laganna að sinni og leggur til að gögn samkvæmt 3. og 4. mgr. 48. gr. laga skuli afhent að beiðni fjármálaeftirlitsins.
Þá leggur nefndin til að 9. gr. frumvarpsins öðlist þegar gildi en gert er ráð fyrir því að önnur ákvæði öðlist gildi 1. september 2023. Að auki eru lagðar til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.