Land og skógur.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti í 858. máli um frumvarp til laga um Land og skóg. Með frumvarpinu er lagt til að Landgræðslan og Skógræktin verði sameinaðar í nýja stofnun sem muni sinna verkefnum á sviði landgræðslu og skógræktar undir heitinu Land og skógur. Sameining þessara stofnana hefur áður komið til athugunar enda verkefni stofnananna um margt nátengd en af ýmsum ástæðum hefur sameiningin ekki gengið eftir. Talið er að bæði fagleg og rekstrarleg rök mæli með sameiningunni sem sé til þess fallin að ná meiri árangri í málaflokknum auk þess sem hún þjóni markmiðum í ríkisstjórnarsáttmála um að efla landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis til að mæta skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum. Báðar stofnanir fara með stórt og vaxandi hlutverk á sviði umhverfis- og loftslagsmála og eru því mikil tækifæri fólgin í heildstæðari sýn á landnýtingu í sameinaðri stofnun.
Nefndin fjallaði um málið. Um það bárust 12 umsagnir og fékk nefndin á sinn fund fjölda gesta. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir í garð frumvarpsins og fagna fyrirhugaðri sameiningu stofnananna tveggja. Greint er frá umsögnum og gestakomum í nefndaráliti sem liggur frammi.
Virðulegi forseti. Að mati nefndarinnar felur frumvarpið í sér jákvætt skref í átt að aukinni hagræðingu og skilvirkni á sviði landgræðslu og skógræktar sem jafnframt stuðli að markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda vegna landnotkunar. Nefndin telur að vandað hafi verið til verka við undirbúning þessarar sameiningar en leggur áherslu á mikilvægi þess að framhald þeirrar vinnu, þegar nýrri stofnun hefur verið komið á fót, gangi fumlaust fyrir sig. Huga þarf sérstaklega að mannauði beggja stofnana svo að engar tafir verði á framgangi brýnna og aðkallandi verkefna í þágu loftslagsaðgerða, verndar líffræðilegs fjölbreytileika og varna gegn eyðimerkurmyndun innan hinnar nýju stofnunar. Að mati nefndarinnar getur sameinuð stofnun orðið grunnur að öflugri stjórnsýslustofnun í landbúnaði sem vöntun er á. Verkefni nýrrar stofnunar eru eðli málsins samkvæmt um land allt. Nefndin leggur áherslu á að starfsstöðvar hennar verði að finna í öllum landshlutum svo að þjónusta stofnunarinnar á hverjum stað sé öflug, skilvirk og taki mið af landshlutabundnum verkefnum stofnunarinnar.
Nefndin fjallaði um nokkur efnisatriði frumvarpsins sérstaklega, atriði sem athygli nefndarinnar var vakin á, svo sem tillögur að breytingum og heiti nýrrar stofnunar, en skiptar skoðanir voru um ágæti þess meðal umsagnaraðila. Öll þau mögulegu heiti sem reifuð voru í umsögnum og innan nefndarinnar eru listuð í nefndarálitinu en nefndin leggur ekki til breytingar á heiti stofnunarinnar að svo komnu máli. Að mati nefndarinnar felur nafnið Land og skógur í sér skírskotun til heita eldri stofnana og varpar ljósi á þær áherslur sem verða í fyrirrúmi hjá hinni nýju stofnun.
Varðandi önnur atriði sem rædd voru sérstaklega má nefna athugasemdir umsagnaraðila um mikilvægi samráðs við bændur og aðra hagaðila. Nefndin telur rétt að ný og sameinuð stofnun hafi samráð við bændur og hagsmunasamtök þeirra þegar kemur að verkefnum og stefnumótun á vegum stofnunarinnar sem varða bændur á tilteknum svæðum og setji sér starfsreglur um slíkt samráð sem birta skuli opinberlega. Í því samhengi bendir nefndin á að í 14. gr. laga um skóga og skógrækt, nr. 33/2019, er þegar mælt fyrir um að Skógræktin skuli hafa samstarf við félög skógarbænda á viðkomandi svæðum og leita umsagnar Landssamtaka skógareigenda um tiltekin málefni. Hin nýja stofnun kemur til með að taka við þessu hlutverki samkvæmt frumvarpinu eins og fram kemur þar.
Af hálfu umsagnaraðila var einnig bent á að greina mætti betur á milli annars vegar ráðgjafar og eftirlitshlutverks hinnar nýju stofnunar og nytjaskógræktar hins vegar, þá einkum framleiðslu, sölu og markaðssetningu skógarafurða. Nefndin telur brýnt að ný stofnun standi ekki í samkeppnisrekstri þótt vissulega geti verið um einstaka tímabundin en nauðsynleg framkvæmdaverkefni að ræða sem verður ekki sinnt af öðrum en stofnuninni sjálfri. Þá beinir nefndin því til ráðherra að skýra betur eftir atvikum með setningu reglugerðar, sbr. 3. gr. frumvarpsins, hvert hlutverk hinnar nýju stofnunar á sviði nytjaskógræktar skuli vera að teknu tilliti til framleiðslu, markaðssetningar og sölu skógarafurða og hvort og þá hvaða starfsemi henni sé ætlað að sinna á framangreindum sviðum.
Virðulegi forseti. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til nokkrar breytingar á frumvarpi þessu sem skýrðar eru í nefndaráliti sem liggur frammi. Þær varða fyrst og fremst 2. og 7. gr. frumvarpsins.
2. gr. frumvarpsins fjallar um hlutverk Lands og skógar en á það var bent að hana þyrfti að skýra betur. Annars vegar að skýra nánar að þótt stofnunin fari með mikilvægt eftirlitshlutverk á sviði landgræðslu og skógræktar sinni hún jafnframt ákveðnu framkvæmdahlutverki samhliða, þ.e. með verkefnum sem unnin eru á grundvelli laga nr. 155/2018, um landgræðslu, og laga nr. 33/2019, um skóga og skógrækt.
Nefndin leggur jafnframt til þær breytingar á 2. gr. frumvarpsins að skýrt sé kveðið á um að hlutverk Lands og skógar sé að starfa eftir alþjóðlegum samningum sem snerta verkefni stofnunarinnar. Í þessu samhengi má nefna loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna og samninga Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni annars vegar og aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun hins vegar, auk annarra alþjóðasamninga um náttúruvernd sem Ísland hefur fullgilt.
Í 7. gr. frumvarpsins eru ráðgerðar breytingar á 6. gr. laga nr. 155/2018, um landgræðslu, og 4. gr. laga nr. 33/2019, um skóga og skógrækt, er lúta báðar að landsáætlun um landgræðslu og skógrækt. Í umsögn Landgræðslunnar eru lagðar til breytingar á orðalagi þessara lagagreina og nefndin leggur því til breytingar í samræmi við þær tillögur sem gerðar eru í umsögn Landgræðslunnar. Í þeim er miðað að því að stefna stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt stuðli ekki einvörðungu að framförum í mati á jarðvegsvernd heldur einnig og samhliða að framförum í landnýtingu. Þá eru enn fremur gerðar orðalagsbreytingar til að draga betur fram mikilvægi verndar og endurheimtar vistkerfa í áætluninni. Tillagan hefur ekki í för með sér efnislegar breytingar en undirstrikar mikilvægi landnýtingarþáttarins sem og endurheimtar vistkerfa.
Í þessu samhengi er vert að nefna að umhverfis- og samgöngunefnd telur mikilvægt að hin nýja stofnun marki sér skýra stefnu til framtíðar þar sem tekið sé mið af ólíkum sjónarmiðum varðandi verndun og nytjar lands og skóga. Nefndin bendir á að sameiginleg landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt til ársins 2031, Land og líf, eins og hún er kölluð, sem birt var í ágúst 2022, sé góður grunnur til að byggja stefnu nýrrar sameinaðrar stofnunar á. Þá beinir nefndin því til ráðherra að skerpa á hlutverki hinnar nýju stofnunar er varðar málefni stjórnsýslu og sjálfbærrar þróunar eftir atvikum með setningu reglugerðar, samanber heimild í 3. gr. frumvarpsins.
Þá komu til umræðu í nefndinni frekari verkefni sem öflug stofnun af þessu tagi gæti sinnt, m.a. hvort samlegð gæti verið með auknu hlutverki í ráðgjöf í landbúnaði og að slík ráðgjafarverkefni yrðu þannig felld undir verksvið hinnar nýju stofnunar. Því beinir nefndin því til ráðherra að kanna hvort grundvöllur sé fyrir frekara samstarfi um verkefni á sviði landbúnaðar sem hið opinbera fjármagnar að hluta eða jafnvel að fella slík verkefni undir starfssvið hinnar nýju stofnunar, þá efldrar stjórnsýslustofnunar á sviði landgræðslu, skógræktar og landnýtingar almennt. Komi til þess bendir nefndin jafnframt á að þá færi e.t.v. vel á því að finna stofnuninni annað nafn sem myndi endurspegla hlutverk hennar, en eins og áður segir er fjöldann allan af góðum tillögum að finna í nefndarálitinu.
Þá leggur nefndin til nokkrar breytingartillögur sem eru tæknilegs eðlis og þarfnast ekki skýringar.
Að framansögðu virtu er umhverfis- og samgöngunefnd einhuga um afgreiðslu málsins og leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á þskj. 1923.
Undir nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, formaður nefndarinnar, Andrés Ingi Jónsson, Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Að lokum langar mig að segja, virðulegi forseti: Það er vandasamt verk að sameina stofnanir, það þekkjum við bara úr orðræðunni. Ég kom inn á það í framsögu minni að þessi hugmynd um að sameina þessar tvær stofnanir er ekki ný af nálinni. En svo virðist — nefndin tekur undir það og sér það í innsendum umsögnum og samtölum við umsagnaraðila — sem virkilega vel hafi verið staðið að verki við undirbúning þessarar sameiningar. En nefndin áréttar líka að eitt er auðvitað að samþykkja frumvarp eins og þetta en annað er að fylgja því þannig eftir að hlutirnir gangi sómasamlega fyrir sig og þar er mannauðurinn hjartað í hverri stofnun.
Undirbúningur sem þessi — málið hefur sannarlega átt sér aðdraganda í nokkur ár og nokkrar atrennur hafa verið gerðar og umræða tekin — er til fyrirmyndar þegar kemur að því að sameina stofnanir á vegum hins opinbera. Ég held að við sjáum, nái þetta frumvarp fram að ganga, raunverulega bót í því að nýta samlegð mjög skyldra stofnana en ólíkra; ég held að við getum haft þetta til viðmiðunar í því samhengi. Nefndin leggur áherslu á þá vinnu sem hefur verið unnin og er undir hatti Lands og lífs, þ.e. þessarar stefnu sem birt var í ágúst síðastliðnum sem ákveðinn útgangspunktur í vinnu nýsameinaðrar stofnunar.