Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[18:40]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni fyrir flutninginn á nefndarálitinu. Ég vil jafnframt þakka fyrir það að í nefndarálitinu er komið inn á mörg þau atriði sem ég fór yfir við 1. umr. málsins. En mig langar sérstaklega að spyrja um eitt atriði, sem er samráðið við bændur. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hann sér fyrir sér að hægt verði að styrkja samráðið og koma í fast form samráði um alla þá þætti sem geta skipt máli. Ég sé þetta fyrir mér sem samráð í nokkrum lögum. Eitt er um stefnuna og annað er svo um ýmis framkvæmdaatriði og auðvitað það hvernig stofnanir sem sinna landi, gróðri og vistkerfum geta náð margfalt meiri árangri með samstarfi við alla þá sem hafa með landnýtingu að gera í landinu en ef stofnanirnar fara bara einhvern veginn í að vinna á því landi sem þær hafa sérstaklega til umráða. Eins velti ég fyrir mér muninum á samráðinu við bændur sem hafa landnýtingu beinlínis að atvinnu og þá sem koma meira að landnýtingu í gegnum félagasamtök og sjálfboðastarf.