Land og skógur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Ég held að við deilum þeirri skoðun, ég og hv. þingmaður, að samráðið er mikilvægt í þessu samhengi. Þó svo að við förum sérstaklega yfir það í nefndaráliti að tala um samráð við bændur þá var það líka til að ávarpa umsagnir og umræðu sem upp kom í nefndinni af því að sá hópur var dreginn sérstaklega fram í orðræðu í nefndinni. En það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að samráðið er víðara. Ég vil samt segja í þessu samhengi að ég lít svo á að við hér, og þá segi ég við, ég bý hér á höfuðborgarsvæðinu og er þingmaður Reykvíkinga, búum svo vel að það eru viljugar vinnufúsar hendur vítt og breitt um land sem hafa landnýtingu að sínu starfi og hafa í árafjöld sinnt mikilvægum verkefnum þegar kemur að því að loka landi og/eða, eins og í seinni tíð, með sérstakri áherslu á loftslagsmál, binda kolefni eins miklu máli og það skiptir. Þess vegna drögum við það líka upp í nefndarálitinu að sameining þessara tveggja stofnana er ekki minnst mikilvæg hvað varðar þau verkefni sem eru næg fyrir okkur.
En af því að hv. þingmaður spyr um samráðið þá tel ég afskaplega mikilvægt að tryggja það. Ég tel raunar að innan þessara tveggja stofnana sé ansi þétt og gott samráð eins og staðan er í dag. Það breytir því ekki að ef einhver hefur athugasemd fram að færa við það, eins og hefur komið fram í ýmsum umsögnum, þá fannst nefndinni mjög mikilvægt að draga það skýrt fram að við leggjum áherslu á það að okkur þykir samráðið vera ákveðinn lykill að árangri í því til að mynda að stemma stigu við loftslagsáhrifum, svo að það sé tekið fram. Við áréttum það til að mynda að nú þegar eru í lagabókstafnum, í 14. gr. laga um skóga og skógrækt, kveðið á um þetta, þ.e. ekki bara að Skógræktin, og þá vonandi ný stofnun, nái frumvarpið fram að ganga, skuli hafa samstarf við félög skógarbænda á viðkomandi svæðum og leita umsagnar Landssamtaka skógareigenda um tiltekið málefni. Samráðið er því innskrifað nú þegar. En það breytir því ekki að við vildum leggja aukreitisáherslu á það.