Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[18:44]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Eins og fram kom í hans máli þá held ég að við séum býsna sammála um þetta. Ég tel að það geti verið gagnlegt, bæði fyrir stofnunina sjálfa og þá sem hún hefur formlegt samráð við, að setja niður ákveðinn leiðarvísi eða verklagsreglur um hvernig samráð skuli fara fram. Það styður við framkvæmdina að menn hittist reglulega og það styður líka við að báðir undirbúi sig fyrir þau verkefni sem samráð er um; mig langaði aðeins að heyra sýn hv. þingmanns á það.

Mig langaði síðan að huga sérstaklega að verkefnum sem skógarbændur, eða þeir sem hafa með einhverjum hætti atvinnu af skógrækt — hvernig við getum séð fyrir okkur samráð á því sviði. Þá hugsa ég sérstaklega um úrvinnslu skógarafurða, hvort sem það er timbrið sjálft eða einhverjar hliðarafurðir úr skóginum, síróp eða eitthvað annað. Ég velti líka fyrir mér hlutverki stofnunarinnar í að þróa þessar skógarnytjar en líka aðrar skógarnytjar, svo sem beitarskógrækt, þar sem verið er að tvinna sama búfjárrækt og skógrækt, eða útivistarskóga eða skóga tengda ferðaþjónustu með öðrum hætti. Hefur þessi stofnun einhvers konar atvinnuþróunarhlutverk að þessu leyti?