Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[18:46]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, það er alveg rétt, ég og hv. þingmaður erum, held ég, í grunnatriðum algjörlega sammála um mikilvægi þessa. Þetta eru mjög áhugaverðar spurningar og vangaveltur sem hv. þingmaður veltir upp. En ég vil bara ítreka — í ljósi þess sem hv. þingmaður kom inn á, þetta með að ný stofnun setji sér einhverjar reglur um samráð — að við kveðum á um það í nefndarálitinu, með leyfi forseta:

„Nefndin telur rétt að ný og sameinuð stofnun […] setji sér starfsreglur um slíkt samráð sem birtar skuli opinberlega.“

Svo að ég komi aftur að fyrri vísun hér áðan, þó að við tölum í nefndarálitinu um þetta samráð og ávörpum bændur sérstaklega, þá tel ég mjög mikilvægt að stofnunin setji sér líka reglur, eins og hv. þingmaður kom inn á, um frjáls félagasamtök sem stunda skógrækt og hafa gert í áratugi, sem dæmi, og setji sér viðmið og reglur um það hvernig lagt er upp með þetta. Ég held að ný stofnun hafi ágætisveganesti frá nefndinni með það. Ég fann ekki annað í samtölum, bæði við þá aðila sem hreyfðu við þessari umræðu sem og fulltrúa núverandi stofnunar, en að það væri ríkur vilji til þess. Ég hef því í sjálfu sér ekki miklar áhyggjur af því en við erum þó alla vega búin að ávarpa það í álitinu.

Varðandi atvinnuþróunarhlutverk nýrrar stofnunar þá finnst mér það bara mjög áhugaverð spurning. Við erum í sjálfu sér ekki að fjalla um það sérstaklega í frumvarpinu, annað en að við drögum upp mikilvægi þess að þetta er ekki einvörðungu stjórnsýslustofnun heldur líka framkvæmdastofnun, eins og við ávörpum í nokkrum orðum í nefndarálitinu. Ég tel engu að síður að sú stefna sem var birt í fyrra, og ég hef vísað í í fyrri ræðum, Land og líf, sé mjög gott tæki til þess að horfa á til framtíðar með það hvernig við viljum haga þeirri sýn og stefnu hvað varðar þennan þátt landnýtingar, bæði skógræktar og landgræðslu, í raun endurheimt vistkerfa.