íþrótta- og æskulýðsstarf.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, nr. 45/2019, sem er ætlað að skýra hlutverk samskiptaráðgjafa með hliðsjón af þeirri þróun sem hefur orðið frá því að samskiptaráðgjafi tók til starfa og að tryggja fullnægjandi heimildir til vinnslu og miðlunar persónuupplýsinga. Jafnframt eru lagðar til breytingar á íþróttalögum, nr. 64/1998, í því skyni að samræma orðalag milli málsgreina.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund ýmsa gesti sem málinu tengjast og bárust alls sjö umsagnir. Frekar er greint frá því í nefndaráliti sem liggur frammi auk þess sem hægt er að kynna sér það á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta ákveðna þætti sérstaklega. Nefndin fjallaði um heildstæða endurskoðun laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs en í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur fram að þau skuli endurskoðuð eftir 1. janúar 2024. Meiri hlutinn telur æskilegt að þær breytingar sem felast í frumvarpinu nái fram að ganga nú svo að lögin nái betur markmiðum sínum en að heildstæð endurskoðun fari fram síðar líkt og kveðið er á um.
Þá fjallaði nefndin um ráðgefandi álit sem kveðið er á um í 1. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn telur mikilvægt að samskiptaráðgjafi hafi heimildir til útgáfu ráðgefandi álita enda geta þau verið til þess fallin að hafa jákvæð áhrif á stöðu þeirra aðila sem um ræðir. Þá áréttar meiri hlutinn að útgáfa ráðgefandi álita hefur ekki áhrif á lögbundin hlutverk annarra, svo sem lögreglu og barnaverndar. Meiri hlutinn telur þau vel til þess fallin að ná þeim markmiðum sem fram komu í 2. mgr. laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Nefndin fjallaði að auki um persónuvernd og þagnarskyldu. Meiri hlutinn telur ljóst að við vinnslu mála beri samskiptaráðgjafa að líta til gildandi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, þar með talið með þeim hætti að vinnsla persónuupplýsinga sé gagnsæ gagnvart hinum skráða. Þá er ljóst að almennar reglur stjórnsýsluréttar, sem og laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, gilda um störf samskiptaráðgjafa, þar með talið að því er varðar aðkomu aðila að málum. Meiri hlutinn tekur sérstaklega fram að við yfirferð nefndarinnar á frumvarpinu kom fram að ósamræmi væri milli 3. gr. frumvarpsins og þess sem kemur fram í 3. kafla greinargerðar frumvarpsins. Meiri hlutinn áréttar að ákvæði 3. gr. frumvarpsins felur ekki í sér reglu sem gengur framar ákvæðum upplýsingalaga heldur reglu um lagagrundvöll þagnarskyldu samskiptaráðgjafa.
Til viðbótar fjallaði nefndin um fræðsluskyldu og fyrirbyggjandi aðgerðir. Með frumvarpinu er lagt til að í reglugerð skuli fjallað um fræðslu um vinnslu og miðlun persónuupplýsinga en í 8. gr. er þegar mælt fyrir um að ráðherra skuli með reglugerð setja nánari reglur um starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, m.a. um kynningarstarf og útgáfumál. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að reglugerð á grundvelli 8. gr. verði sett sem fyrst enda mikilvægt að skýra enn betur þann ramma sem samskiptaráðgjafi starfar eftir.
Meiri hlutinn vill undirstrika mikilvægi þess að samskiptaráðgjafi sinni kynningar- og forvarnastarfi. Samkvæmt lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er það eitt af hlutverkum samskiptaráðgjafa að veita ráðgjöf til þeirra sem taka þátt í starfsemi félaga og samtaka sem falla undir lögin um fyrirbyggjandi aðgerðir. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að stuðla að því að draga úr hættu á að atvik kunni að koma upp og að innan íþrótta- og æskulýðsstarfs verði sameiginlegur skilningur á því hvers konar hegðun sé óásættanleg.
Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu hvað varðar íþróttalög og refsidóma.
Í 1. mgr. 16. gr. íþróttalaga kemur fram að óheimilt sé að ráða til starfa hjá aðilum sem falla undir lögin og sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri í íþróttastarfi einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Sama gildi um þá sem hlotið hafa refsidóma fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Ákvæðið nær einnig til þeirra sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs.
Meiri hlutinn telur afar brýnt að í 1. mgr. 16. gr. íþróttalaga verði einnig vísað til 211. og 218. gr. almennra hegningarlaga sem fjalla um manndráp og alvarlegar líkamsárásir. Í því sambandi horfir meiri hlutinn til alvarleika þeirra brota og þess viðkvæma hóps sem reglunum er ætlað að taka til. Þá vísar meiri hlutinn til þess að bæði í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, eru til að mynda ákvæði þar sem fjallað er um bann við ráðningum einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma vegna brota á ákvæðum 211. eða 218. gr. almennra hegningarlaga. Meiri hlutinn telur einsýnt að sama regla eigi að gilda um aðila sem starfa með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri í íþróttastarfi.
Nefndin tók til skoðunar hvort tilefni væri til að fella erlenda refsidóma fyrir þau brot sem ákvæði 1. mgr. 16. gr. íþróttalaga tekur til undir ákvæðið þannig að brot erlendis og hérlendis yrðu gerð að jöfnu. Í því sambandi horfir meiri hlutinn til þess að almennt verði að telja að slík ákvæði séu til þess fallin að styrkja réttarvernd barna og ungmenna. Það þarf þó að vera mögulegt að afla slíkra upplýsinga og öflun slíkra upplýsinga má ekki vera útilokandi fyrir einstaklinga sem til að mynda koma frá eða hafa starfað í ríkjum þar sem öflun slíkra upplýsinga er ómöguleg. Í einhverjum tilvikum eru slíkar upplýsingar þó aðgengilegar hér á landi hjá Útlendingastofnun. Meiri hlutinn telur því rétt að beina því til ráðuneytisins að skoða framangreint heildstætt og útfæra leið þannig að unnt verði að afla þeirra upplýsinga sem a.m.k. eru fyrirliggjandi.
Með frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á æskulýðslögum, nr. 70/2007. Því beinir meiri hluti nefndarinnar því til ráðuneytisins að skoða samræmi milli íþróttalaga annars vegar og æskulýðslaga hins vegar með það að markmiði að gera sambærilegar breytingar á æskulýðslögum.
Virðulegi forseti. Vísast að öðru leyti til umfjöllunar um breytingartillögu í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gert hefur verið grein fyrir. Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, formaður nefndarinnar, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, og hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Helga Vala Helgadóttir, sem ritar undir með fyrirvara, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Tómas A. Tómasson.
Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.