íþrótta- og æskulýðsstarf.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir spurninguna og þessar vangaveltur sem eru vissulega sjálfsagðar. Ég vil nefna hér aukninguna sem sannarlega kemur fram í upplýsingum frá samskiptaráðgjafanum. Við í nefndinni ræddum mikilvægi þess að hafa áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir. Það verður bara að segjast eins og er að það var mikil þörf fyrir þetta á sínum tíma. Nú sjáum við hvernig starfinu vindur fram og það er mikilvægt að endurskoða það á þessum tímapunkti og sjá hvað betur má fara. En það sem stendur kannski upp úr í mínum huga er það að við sjáum sannarlega þörfina og það hefur verið bætt við þetta starf, aukinn styrkur innan ráðuneytisins á þessum tíma. Eftir stendur að ég held að það megi gera betur varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir og upplýsingar til félaganna og fyrst þegar svona lagað er sett á fót gefur það augaleið að farið er í ákveðna stefnumótun með starfið. Partur af því er auðvitað að setja upp verkferla, tryggja að upplýsingagjöf sé rétt og veita aðgang að þjónustunni. Nú held ég að það sé mikilvægt að við lítum líka til fyrirbyggjandi aðgerða og að farið verði um landið með upplýsingar sem geta komið í veg fyrir að slík mál komi upp og stöðvað þau áður en þau gerast og það er auðvitað mikið til þess að vinna. Það þýðir að það þarf að eiga gott samstarf við öll félög landsins sem undir eru.
Ég ætla að leyfa mér að vera mjög bjartsýnn varðandi þessa vinnu. Ég held að hún sé að skila árangri. En að sama skapi þurfum við líka þá vitundarvakningu sem ég nefni hér.