Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 116. fundur,  5. júní 2023.

íþrótta- og æskulýðsstarf.

597. mál
[19:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir, það er þyngra en tárum taki þegar upp koma mál sem snúa að íþrótta- og æskulýðsstarfi og það er mikilvægt að við sinnum forvarnarhlutverkinu. Það er líka mikilvægt að við höfum stefnu og viðbragðsáætlun til staðar ef eitthvað slíkt kemur upp. Starfið útheimtir gríðarlega mikla heildræna sýn á það að börnum líði vel í því starfi sem um ræðir hverju sinni og samskipti eru auðvitað lykilþátturinn í því, samskipti við börnin, samskipti við foreldra og samskipti við þá sem stýra slíku starfi. Samskiptaráðgjafi sinnir sannarlega mjög góðu starfi og ég held að það muni eflaust aukast enn frekar á komandi árum og misserum.

Við sjáum það bara úr fréttum að ákveðin vitundarvakning hefur átt sér stað. Hún má halda áfram, hún má ná um alla kima samfélagsins. Íþrótta- og æskulýðsstarf þykir sjálfsagt á Íslandi í dag og hér í stjórnmálunum tölum við oft og tíðum um það hve mikilvægt er að greiða leið allra þeirra barna og ungmenna sem hafa áhuga á því að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag. Ég held við séum að stefna í þá átt. Þetta er langstærsta hreyfing landsins, íþrótta- og æskulýðsmál, og það er mikilvægt að við tryggjum alltaf og algjörlega undantekningarlaust öryggi þeirra iðkenda sem þar eru undir.